Fara beint í efnið

8. október 2018

Skráning er hafin í Tóbakslaus bekkur. Hetjur leiða herferðina.

Hin árlega samkeppni Tóbakslaus bekkur er nú að hefjast hér á landi í tuttugasta sinn. Skráning er þegar hafin og þarf að skrá bekki í síðasta lagi 16. nóvember 2018 á vefsíðunni Tóbakslaus bekkur.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Hin árlega samkeppni Tóbakslaus bekkur er nú að hefjast hér á landi í tuttugasta sinn. Skráning er þegar hafin og þarf að skrá bekki í síðasta lagi 16. nóvember 2018 á vefsíðunni Tóbakslaus bekkur.

Ný kynslóð af hetjum; Reyksugan, Lyktareyðirinn, Strokarinn, Tölvan og Hugríkur leiða herferðina og hjálpa okkur að útrýma tóbakinu fyrir fullt og allt með nýjar hugmyndir og sköpunargleðina að vopni.

Öllum sjöundu, áttundu og níundu bekkjum í grunnskólum landsins stendur til boða að taka þátt ef enginn nemandi í viðkomandi bekk notar tóbak. Á keppnistímabilinu verða dregnir út nokkrir heppnir tóbakslausir bekkir og allir í bekknum fá senda gjöf.

Hetjuþema - Tíu bekkir fá verðlaun fyrir lokaverkefni

Í vor geta samtals tíu bekkir unnið til verðlauna með því að senda inn lokaverkefni. Þeir bekkir sem velja að senda inn lokaverkefni geta unnið fé til að ráðstafa eins og bekkurinn kýs að gera. Upphæðin nemur 5.000 krónum fyrir hvern skráðan nemanda í bekknum.

Sem fyrr segir eru Reyksugan, Lyktareyðirinn, Strokarinn, Tölvan og Hugríkur  hetjur af nýrri kynslóð sem aðstoða okkur við að útrýma tóbakinu fyrir fullt og allt með nýjar hugmyndir og sköpunargleðina að vopni. Reyksugan sogar til sín allan reyk, Lyktareyðirinn getur breytt tóbakslykt í ilm af nýbökuðum smákökum, Strokarinn þurrkar út allt tóbak, Tölvan reiknar út hversu ótrúlega mikið tóbak kostar okkur og Hugríkur skrifar nýja, tóbakslausa framtíð með hugmyndaauðgina að vopni. Markmiðið í ár er að hjálpa þessum hetjum að finna nýjar leiðir til að berjast við tóbakið.

Við hvetjum ykkur til að skrifa sögur þessara persóna, skapa nýjar persónur eða gera hvað annað sem ykkur dettur í hug. Tilgangurinn er einungis að fá nýjar, ferskar og skemmtilegar hugmyndir sem munu móta tóbakslausa framtíð.Möguleika á að vinna til verðlauna eiga aðeins þeir bekkir sem senda inn lokaverkefni. Verkefnin geta verið með ýmsu móti, t.d. veggspjöld, auglýsingar, stuttmyndir eða fræðsluefni um tóbaksvarnir.

ATH! Stuttmyndir mega ekki vera lengri en tíu mínútur.

Úrslitin verða tilkynnt eftir miðjan maí 2019.

Hægt er að skoða lokaverkefni verðlaunahafa í síðustu samkeppni í frétt um úrslitin 14. maí 2018.

Viðar Jensson, verkefnisstjóri