Fara beint í efnið

28. nóvember 2018

Sameiginleg fréttatilkynning frá Matvælastofnun, sóttvarnalækni og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur

Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir af matareitrun af völdum nóróveiru hjá hópum einstaklinga í tengslum við neyslu sjávarafurða á Skelfisksmarkaðinum í Reykjavík. Staðfest hefur verið að orsök veikindanna má rekja til mengaðra ostra.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir af matareitrun af völdum nóróveiru hjá hópum einstaklinga í tengslum við neyslu sjávarafurða á Skelfisksmarkaðinum í Reykjavík. Staðfest hefur verið að orsök veikindanna má rekja til mengaðra ostra.

Samkvæmt því sem áður hefur komið fram þá veiktust 44 einstaklingar og áttu þeir allir það sameiginlegt að hafa snætt ostrur á veitingastaðnum dagana 8. nóvember til og með 13. nóvember sl. Nóróveirur greindust í ostrum sem voru á matseðli á þessu tímabili. Einnig er vitað um fjóra einstaklinga sem veiktust og áttu þeir það sameiginlegt að hafa borðað ostrur á staðnum dagana 29. október til 4. nóvember.

Um er að ræða ostrur innfluttar frá Spáni sem ungviði og áfram ræktaðar til manneldis í Skjálfandaflóa af fyrirtækinu Víkurskel. Er þetta í fyrsta sinn sem nóróveira er staðfest í ostrum hér á landi. Leitað verður að uppsprettu sýkingarinnar í ostrunum.

Við skoðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur kom í ljós að virkt móttökueftirlit og matvælaöryggiskerfi er í gildi á Skelfisksmarkaðinum.

Sóttvarnalæknir
Matvælastofnun
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur