Fara beint í efnið

23. desember 2021

Rakning C-19 uppfært fyrir iOS

Smitrakningarapp embættis landlæknis og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra (Rakning C-19) hefur verið uppfært til að bæta virkni þess á iOS-snjalltækjum. Uppfærslan mun styðja betur við starfsemi smitrakningarteymis en áður með því einfalda útreikning fyrir útsetningu á smiti. Þá verður staða smitrakningar sýnileg í appinu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Smitrakningarapp embættis landlæknis og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra (Rakning C-19) hefur verið uppfært til að bæta virkni þess á iOS-snjalltækjum. Uppfærslan mun styðja betur við starfsemi smitrakningarteymis en áður með því einfalda útreikning fyrir útsetningu á smiti. Þá verður staða smitrakningar sýnileg í appinu.

Eftir að appið hefur verið uppfært þurfa notendur að fara í gegnum uppsetningarferli til að virkja rakningu.

Með uppfærslunni er ekki lengur boðið upp á að nota símanúmer til að fá tilkynningar úr niðurstöðu landamæraskimunar, auk þess hafa þýðingar á ensku og pólsku verið bættar. Þróun appsins er á vegum embættis landlæknis í samvinnu við aðra hýsingar- og þróunaraðila. Öryggisúttekt var gerð á appinu og jafnframt var mat Persónuverndar fengið á virkni þess.

Nánari upplýsingar um virkni appsins má finna hér fyrir neðan:

Hvernig virkar appið?Rakning C-19 notar Bluetooth-merki símtækja til að reikna út fjarlægð milli tækja. Símarnir skiptast á ópersónugreinanlegum upplýsingum, eða svokölluðum lyklum, auk þess sem appið sækir reglulega upplýsingar um lykla sem hafa verið sendir frá öðrum tækjum. Þegar einstaklingur sýkist af COVID-19 og er með appið biður rakningarteymi almannavarnadeildar viðkomandi að senda lykla úr appinu. Ef sími sækir upplýsingar um lykil sem hann hefur séð áður fara útreikningar af stað sem meta líkur á útsetningu.

Ef símarnir hafa verið í minna en 2 metra fjarlægð í 15 mínútur kemur upp tilkynning um hugsanlega útsetningu. Þegar einstaklingur fær slíka tilkynningu getur viðkomandi fylgt leiðbeiningum í appinu um skráningu í smitgát og jafnframt fengið boð í sýnatöku.

Skráning í smitgát er ákvörðun hvers og eins notanda. Tilgangurinn er fyrst og fremst að gera hverjum og einum kleift að grípa til ráðstafana, takmarka samneyti við aðra, huga enn betur að einstaklingsbundnum sóttvörnum og fá sjálfkrafa boð í sýnatöku.

Hver er ávinningurinn?Smitrakning hefur skipt sköpum í viðureign okkar við heimsfaraldur COVID-19. Á þessum tímapunkti, þegar margir hafa fengið bólusetningu og fyrirsjáanlegt er að samfélag okkar verði opnara og að meira verði um ferðalög hingað til lands, er einkar mikilvægt að smitrakning verði áfram skilvirk og árangursrík. Þær breytingar sem fyrirsjáanlegar eru, t.d. varðandi aðgerðir innanlands og á landamærum, munu gera smitrakningu flóknari. Ný útgáfa Rakning C-19 er liður í að auðvelda þá vinnu.

Nánari upplýsingar veitir

Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis

netfang: kjartanh@landlaeknir.is