23. júlí 2020
23. júlí 2020
Óskum eftir að ráða yfirlækni á sóttvarnasvið
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða yfirlækni til starfa á sviði sóttvarna. Starfið felst fyrst og fremst í verkefnum tengdum sýklalyfjaónæmi ásamt fjölbreyttum verkefnum á sviði sóttvarna. Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á þekkingu í læknavísindum, fagmennsku og samskiptahæfni. Næsti yfirmaður er sóttvarnalæknir.
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða yfirlækni til starfa á sviði sóttvarna. Starfið felst fyrst og fremst í verkefnum tengdum sýklalyfjaónæmi ásamt fjölbreyttum verkefnum á sviði sóttvarna. Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á þekkingu í læknavísindum, fagmennsku og samskiptahæfni. Næsti yfirmaður er sóttvarnalæknir en viðkomandi mun vinna í nánu samstarfi við teymi sérfræðinga í samræmi við lögbundna starfsemi sóttvarnalæknis samkvæmt sóttvarnalögum. Starfið er laust frá og með 1. október eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða fullt starf en möguleiki er á hlutastarfi.
Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna að opinberum aðgerðum gegn sýklalyfjaónæmi, skynsamlegri notkun sýklalyfja í samvinnu við lækna, vinnslu gagna og birtingu þeirra
Samskipti við helstu aðila innanlands og erlendis um aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis
Önnur verkefni að beiðni sóttvarnalæknis eða landlæknis, þar með talið vinna við heimsfaraldur COVID-19 eins og þörf er á hverju sinni
Hæfnikröfur
Sérfræðimenntun í læknisfræði og íslenskt starfsleyfi sem sérfræðilæknir
Víðtæk starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu
Reynsla í faraldsfræði æskileg
Góð færni í íslensku og ensku
Almenn góð tölvukunnátta
Starfsreynsla á sviði stjórnsýslu er kostur
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
Frekari upplýsingar um starfiðLaun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu embættisins og við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknin gildir í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggir á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Embætti landlæknis starfar í samræmi við lög um landlækni og lýðheilsu. Hlutverk embættisins í hnotskurn er að stuðla að góðri og öruggri heilbrigðisþjónustu, heilsueflingu og öflugum forvörnum. Embættið hefur sett sér þrjú gildi sem starfsmönnum ber að hafa að leiðarljósi þ.e. ábyrgð, virðing og traust. Við erum heilsueflandi vinnustaður sem leggur áherslu á að efla mannauð og stuðla að góðri heilsu og líðan starfsmanna.
Starfshlutfall er 100%Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2020
Nánari upplýsingar veitirÞórólfur Guðnason - thorolfur@landlaeknir.is - 510-1900