Fara beint í efnið

24. nóvember 2021

Óskum eftir að ráða teymisstjóra í teymi rafrænna upplýsingakerfa

Heilbrigðisupplýsingasvið hjá embætti landlæknis óskar eftir að ráða teymisstjóra í teymi rafrænna upplýsingakerfa en sviðið hefur yfirumsjón með innri upplýsingakerfum embættisins. Starfið felur í sér ábyrgð á daglegum rekstri vél- og hugbúnaðarkerfa og þróun rafrænna upplýsingakerfa og rafrænna veflausna.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Heilbrigðisupplýsingasvið hjá embætti landlæknis óskar eftir að ráða teymisstjóra í teymi rafrænna upplýsingakerfa en sviðið hefur yfirumsjón með innri upplýsingakerfum embættisins. Starfið felur í sér ábyrgð á daglegum rekstri vél- og hugbúnaðarkerfa og þróun rafrænna upplýsingakerfa og rafrænna veflausna.

Sviðið rekur gagnasöfn á landsvísu og er gagnasöfnun og gagnagreiningu embættisins ætlað að uppfylla margs konar þarfir. Má þar nefna stuðning við stefnu og aðgerðir heilbrigðisyfirvalda, stuðning við heilsueflandi samfélög, nýtingu vegna eftirlitsskyldu embættisins og til almennrar vefbirtingar tölfræði um heilsufar og heilbrigðisþjónustu. Sviðið annast einnig afgreiðslu umsókna um aðgang að gögnum til vísindarannsókna.

Leitað er að einstaklingi sem hefur stjórnunarhæfileika, getu til að halda góðri yfirsýn og býr yfir metnaði til að þróa framsækið vinnuumhverfi. Starfið felur í sér fjölbreyttar áskoranir til að ná markmiðum embættisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Samhæfir og stýrir verkefnum sem lúta að rafrænum upplýsingakerfum, þ.e. hugbúnaðar- og tæknimálum hjá embættinu.

  • Skilgreinir og forgangsraðar verkefnum á sviði rafrænna upplýsingakerfa í samvinnu við sviðsstjóra og framkvæmdastjórn embættisins.

  • Ber ábyrgð á að rekstur upplýsingakerfa stofnunarinnar gangi hnökralaust fyrir sig.

  • Fylgist með nýjungum og innleiðir eftir því sem við á.

  • Ber ábyrgð á að kröfur um öryggi rafrænna upplýsingakerfa séu uppfylltar í samvinnu við öryggisstjóra.

  • Semur um framkvæmd upplýsingatækniverkefna við ytri aðila í samráði við sviðsstjóra og fjármálastjóra.

  • Hefur samstarf við Miðstöðvar rafrænna heilbrigðislausna um rafræna gagnasöfnun í heilbrigðisskrár embættisins.

  • Vinnur að uppbyggingu og þróun úrvinnslugrunna til gagnagreiningar og þróun innri kerfa.

  • Tekur þátt í stefnumótun og áætlanagerð teymis, sviðs og embættis á sviði rafrænna upplýsingakerfa.

  • Önnur verkefni í samráði við sviðsstjóra og landlækni.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi er skilyrði, framhaldsnám er kostur.

  • Marktæk reynsla af stjórnun, rekstri og innleiðingu upplýsingakerfa, þ.m.t. vélbúnaði og hugbúnaði.

  • Þekking á löggjöf og stöðlum varðandi öryggi net- og upplýsingakerfa og reynsla af innleiðingu og rekstri.

  • Öflug þekking á og reynsla af gagnagrunnskerfum (Oracle og SQL), Microsoft hugbúnaði og SAP/BO.

  • Þekking á þróun hugbúnaðarkerfa, hugbúnaði til gagnagreiningar og hugbúnaði til miðlunar á vef.

  • Góð skipulagshæfni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð og rík öryggisvitund.

  • Metnaður til að ná árangri, vilji til breytinga og geta til að leiða framfarir.

  • Mikil færni í mannlegum samskiptum, jákvætt hugarfar, þjónustulipurð og frumkvæði.

Starfshlutfall er 100%Umsóknarfrestur er til og með 13.12.2021

Sótt er um starfið á Starfatorg þar sem eru frekari upplýsingar.

Nánari upplýsingar veita

Sigríður Haraldsd. Elínardóttir - shara@landlaeknir.is - 510 1900

Þórgunnur Hjaltadóttir - thorgunnur@landlaeknir.is - 510 1900