Fara beint í efnið

29. janúar 2020

Orsök bótulisma hefur ekki fundist

Niðurstöður úr matvælasýnum sem voru tekin til rannsóknar vegna bótulisma eitrunar í síðustu viku liggja fyrir. Eitrunina var ekki hægt að rekja til þeirra matvæla.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Niðurstöður úr matvælasýnum sem voru tekin til rannsóknar vegna bótulisma eitrunar í síðustu viku liggja fyrir. Eitrunina var ekki hægt að rekja til þeirra matvæla.

Fulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra tóku sýni af matvælum á heimili þess sem veiktist. Fulltrúi sóttvarnalæknis fór yfir neyslusögu með aðstandendum og á grundvelli hennar voru þrjú sýni af matvælum send til greininga á rannsóknastofu erlendis. Niðurstöðurnar sýna að matvælin sem send voru í rannsókn voru ekki orsök eitrunar af völdum Clostridium botulinum. Frekari rannsóknir á orsökum eitrunarinnar eru ekki fyrirhugaðar.

Uppruni eitrunarinnar er því óþekktur. Fleiri tilfelli hafa ekki greinst.

Matvælastofnun
Sóttvarnalæknir
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra