Fara beint í efnið

20. mars 2019

Nýtt tilfelli af mislingum greindist í gær

Í gær, þriðjudaginn 19. mars, greindist einstaklingur í Reykjavík með mislinga og er það sjöunda tilfellið frá því að mislingafaraldurinn hófst hér á landi í febrúar sl.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í gær, þriðjudaginn 19. mars, greindist einstaklingur í Reykjavík með mislinga og er það sjöunda tilfellið frá því að mislingafaraldurinn hófst hér á landi í febrúar sl. Einn þessara sjö einstaklinga var með jákvætt próf eftir mislingabólusetningu sem greinir ekki á milli raunverulegra mislinga og áhrifa af bólusetningunni og flokkast því sem vafatilfelli.

Nýjasta tilfellið er 23 ára gamall einstaklingur með sögu um bólusetningu við 12 ára aldur. Hann hafði nýlega verið í umgengni við smitandi einstakling. Um 10 dögum síðar fékk hann vægan hita í 1–2 daga með mislingalíkum útbrotum. Niðurstaða rannsóknar þann 19. mars var vægt jákvæð fyrir mislingum.

Að öllum líkindum er hér um að ræða væga mislinga („modified measles“) sem er vel lýst hjá bólusettum einstaklingum. Engin hætta er á alvarlegum veikindum í slíkum tilfellum og smithætta til annarra lítil. Ekki er þörf á sóttkví annarra sem umgengist hafa þann veika af þessu tilefni en hinn veiki verður í einangrun í 4 daga eftir að útbrot byrjuðu.

Undanfarið hefur einnig borið á því að bólusettir einstaklingar hafa fengið útbrot skömmu eftir bólusetninguna og hafa greinst jákvæðir í rannsóknum fyrir mislingum. Þessi einkenni eru eðlileg eftir bólusetninguna og valda ekki smiti til annarra. Í flestum slíkum tilfellum er ekki ástæða til sýnatöku en sýnataka er alltaf háð mati læknis.

Þetta nýjasta tilfelli breytir ekki fyrri viðbrögðum við mislingafaraldrinum.

Sóttvarnalæknir