Fara beint í efnið

11. júní 2020

Nýtt eyðublað vegna tilkynningar um starfsemi vefjamiðstöðva

Embætti landlæknis hefur gefið út nýtt eyðublað fyrir þá rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu, sem hyggjast sækja um leyfi til að reka starfsemi vefjamiðstöðvar.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis hefur gefið út nýtt eyðublað fyrir þá rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu, sem hyggjast sækja um leyfi til að reka starfsemi vefjamiðstöðvar.

Starfsemi vefjamiðstöðva þarf að uppfylla þær kröfur sem fram koma í reglugerð um gæði og öryggi við meðhöndlun frumna og vefja úr mönnum nr. 1188/2008 

Viðeigandi eyðublað er hægt að nálgast undir eyðublöð - Rekstur heilbrigðisþjónustu.

Eyðublaðið tekur gildi frá og með deginum í dag, 11.06.2020

Ef óskað er eftir upplýsingum, þá er hægt að senda tölvupóst á netfangið rekstur@landlaeknir.is