17. nóvember 2021
17. nóvember 2021
Nýtt eyðublað - tilkynning um rekstur heilbrigðisþjónustu
Embætti landlæknis hefur gefið út nýtt eyðublað fyrir tilkynningu um rekstur heilbrigðisþjónustu sem tekur gildi frá og með 17. nóvember 2021. Heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum sem hyggjast hefja rekstur heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna það til landlæknis.
Embætti landlæknis hefur gefið út eyðublað fyrir tilkynningu um rekstur heilbrigðisþjónustu sem tekur gildi frá og með 17. nóvember 2021.
Heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum sem hyggjast hefja rekstur heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna það til landlæknis. Er það í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og um landlækni og lýðheilsu nr. 40/2007. Rekstraraðilum ber einnig að tilkynna til landlæknis verði breytingar á þjónustu þeirra eða rekstrinum hætt.
Eyðublaðið má nálgast á vef embættisins undir eyðublöð.
Undirritaða tilkynningu ásamt fylgiskjölum (ef við á) skal senda embætti landlæknis, Katrínartúni 2, 6. hæð, 105 Reykjavík eða á netfangið mottaka@landlaeknir.is
Leyfisveitingateymið