Fara beint í efnið

28. október 2021

Nýtt eyðublað - tilkynning um breytingu á rekstri heilbrigðisþjónustu

Embætti landlæknis hefur gefið út nýtt eyðublað fyrir tilkynningu um breytingu á rekstri í heilbrigðisþjónustu sem tekur gildi frá og með 28. október 2021. Heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum sem hyggjast hefja rekstur heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna það til landlæknis.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis hefur gefið út nýtt eyðublað fyrir tilkynningu um breytingar á rekstri heilbrigðisþjónustu sem tekur gildi frá og með 28. október 2021.

Heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum sem hyggjast hefja rekstur heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna það til landlæknis. Er það í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og glugga og um landlækni og lýðheilsu nr. 40/2007 . Rekstraraðilum ber einnig að tilkynna til landlæknis verði breytingar á þjónustu þeirra eða rekstrinum hætt.

Tilkynningu um breytingu á rekstri heilbrigðisþjónustu má nálgast á vef embættisins á vefsíðunni Umsóknir og eyðublöð.

Undirritaða tilkynningu ásamt fylgiskjölum (ef við á) skal senda embætti landlæknis, Katrínartúni 2, 6. hæð, 105 Reykjavík eða á netfangið mottaka@landlaeknir.is

Leyfisveitingateymið