Fara beint í efnið

11. maí 2020

Ný reglugerð tekur gildi um breytingu á ýmsum reglugerðum vegna útgáfu starfsleyfa og sérfræðileyfa heilbrigðisstétta.

Embætti landlæknis vekur athygli á gildistöku reglugerðar nr. 401/2020 um breytingu á ýmsum reglugerðum vegna útgáfu starfsleyfa og sérfræðileyfa heilbrigðisstétta, sem birt var á vef Stjórnartíðinda 30. apríl sl.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis vekur athygli á gildistöku reglugerðar nr. 401/2020 um breytingu á ýmsum reglugerðum vegna útgáfu starfsleyfa og sérfræðileyfa heilbrigðisstétta, sem birt var á vef Stjórnartíðinda 30. apríl sl.

Samkvæmt reglugerðinni er landlækni heimilt að veita umsækjendum um starfs- eða sérfræðileyfi, sem lokið hafa námi á grundvelli eldri reglugerða heilbrigðisstétta, umsótt leyfi að uppfylltum skilyrðum um menntun og starfsþjálfun/starfsreynslu skv. reglugerðinni.

Sérstök athygli er vakin á því að heimildin fellur úr gildi 1. maí 2021. Því verður umsókn um starfs- eða sérfræðileyfi, sem byggir grundvöll sinn á ákvæðum reglugerðarinnar, að berast embætti landlæknis fyrir þann tíma.