24. júní 2021
24. júní 2021
Ný norræn vefsíða um heilbrigðis- og velferðarmál komin í loftið
NOMESKO & NOSOSKO eru norrænar nefndir um heilbrigðis- og velferðarmál sem hafa það markmið að þróa og birta samanburðarhæfar tölulegar upplýsingar um stöðuna í þessum tveim málaflokkum á Norðurlöndunum. Þann 21. júní sl. var tekinn í notkun ný vefsíða NOMESKO & NOSOSKO þar sem aðgengi að tölulegum upplýsingum er bætt og samanburður á milli Norðurlandanna auðveldaður til muna.
NOMESKO & NOSOSKO eru norrænar nefndir um heilbrigðis- og velferðarmál sem hafa það markmið að þróa og birta samanburðarhæfar tölulegar upplýsingar um stöðuna í þessum tveim málaflokkum á Norðurlöndunum. Þann 21. júní sl. var tekinn í notkun ný vefsíða NOMESKO & NOSOSKO þar sem aðgengi að tölulegum upplýsingum er bætt og samanburður á milli Norðurlandanna auðveldaður til muna. Vefsíðan inniheldur einnig þemaskýrslur þar sem fjallað er um ýmis málefni á sviði heilbrigðis- og velferðarmála sem eru í deiglunni hverju sinni.
Upplýsingar sem finna má á vefsíðunni eru m.a. tíðni lífsstílstengdra sjúkdóma, upplýsingar um notkun tiltekinna lyfja, tíðni örorku, fæðinga- og dánartíðni, fæðingarorlof feðra, lífeyrismál og skipulag heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Embætti landlæknis hefur, í gegnum þátttöku í NOMESKO, og í samvinnu við félagsmálaráðuneytið (NOSOSKO) unnið að þróun þessarar vefsíðu og er það ánægjulegt að hún skuli loks líta dagsins ljós.Uppruni þeirra tölfræðiupplýsinga sem finna má á vefsíðunni er hjá hagstofum Norðurlandanna auk hinna ýmsu stofnana í hverju landi fyrir sig. Gögn fyrir Ísland koma m.a. frá embætti landlæknis, Lyfjastofnun, Hagstofu Íslands, Tryggingastofnun og Krabbameinsskrá.
Hlutverk NOMESKO & NOSOSKO
að safna og birta tölfræðiupplýsingar um heilbrigðis- og félagsmál á Norðurlöndunum
að þróa mælivísa og aðferðir svo bera megi saman lífskjör fólks á Norðurlöndunum
að vakta og uppfæra tölulegar upplýsingar í gagnagrunni og á vefsíðu nefndanna, www.nhwstat.org