Fara beint í efnið

21. desember 2021

Norræna lýðheilsuráðstefnan verður haldin á Íslandi þann 28.-30. júní 2022 / The 13th Nordic Public Health Conference in Reykjavík Iceland June 28th – 30th 2022

Þrettánda Norræna lýðheilsuráðstefnan verður haldin á Íslandi í lok júnímánaðar 2022. Ráðstefnan verður haldin í Hörpu, ráðstefnu- og tónleikahúsi okkar Íslendinga. Upphaflega átti að halda ráðstefnuna sumarið 2020 en vegna heimsfaraldurs var henni frestað.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Þrettánda Norræna lýðheilsuráðstefnan verður haldin á Íslandi í lok júnímánaðar 2022. Ráðstefnan verður haldin í Hörpu, ráðstefnu- og tónleikahúsi okkar Íslendinga. Upphaflega átti að halda ráðstefnuna sumarið 2020 en vegna heimsfaraldurs var henni frestað.

Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Heilsa og vellíðan fyrir alla – horft til framtíðar“ .

Ráðstefnan er vettvangur þar sem Norðurlöndin koma saman, deila þekkingu og reynslu auk þess að efla fagleg tengsl og samstarf á sviði lýðheilsumála. Norðurlöndin eiga margt sameiginlegt hvað varðar heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi og því eru fjölmörg tækifæri til að læra hvert af öðru. Á ráðstefnunni gefst gott tækifæri til að bera saman aðferðir og kerfi í lýðheilsustarfi milli landa. Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á góð dæmi og aðferðir sem hafa borið árangur innan Norðurlandanna. Stefnt er að því að þátttakendur geti bætt í verkfærakistu sína tækjum og tólum til að vinna að lýðheilsumálum. Þess verður gætt að ráðstefnan sjálf verði heilsueflandi.

Þrjár höfuðáherslur ráðstefnunnar verða á: Áhrifaþætti heilsu og vellíðanar, stefnumótun lýðheilsu og gagnadrifið lýðheilsustarf. Þá verður einnig fjallað um heimsfaraldurinn COVID-19 og hvernig lýðheilsustarf hefur skipt sköpum í viðbrögðum og fyrirbyggjandi vinnu til að takast á við afleiðingar hans. 

Ráðstefnan mun renna saman við tíundu Evrópuráðstefnuna um jákvæða sálfræði með einum sameiginlegum ráðstefnudegi. Enn fremur munu þátttakendur eiga kost á því að skrá sig á báðar ráðstefnurnar og fá sérstakan afslátt. Það eru mörg tækifæri sem felast í því að tengja saman svið lýðheilsu og jákvæðrar sálfræði. Vonast er til að þessar ráðstefnur munu byggja sterkari brýr milli þessara fræðasviða. Bæði svið vinna að því að auka vellíðan og lífsgæði með faglegum hætti sem byggja á vísindalegum grunni.

Tekið er á móti ágripum til 31. janúar 2022. Við hvetjum fólk til að senda inn ágrip hvort heldur sem það starfar á vettvangi lýðheilsu, við stefnumótun eða innan rannsóknargeirans.

Skráning á ráðstefnuna er hafin.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu ráðstefnunnar www.nphc2020.com og á Facebook síðu ráðstefnunnar.

Fyrir hönd ráðstefnunefndarinnar

Dóra, Jenný, Sólveig og Inga

English

The 13th Nordic Public Health Conference in Reykjavík Iceland June 28th – 30th 2022


In the fourth week of June 2022 the 13th Nordic Public Health Conference will take place in Iceland. The home of the conference is Harpa, Reykjavík´s conference and concert hall, during the bright night season in Iceland. The conference was initially planned for the summer of 2020 but was postponed due to the world epidemic.

The theme of the conference is "Health and wellbeing for all – heading for the future".

The conference is a platform for the Nordic countries to come together, share knowledge, experience, and cultivate professional relationships and networks in the field of Public Health. The Nordic countries have many similarities both in health, welfare, and educational systems and there are great opportunities to learn from each other. The conference will be a great platform to compare strategies and systems in the field of Public Health between the countries. Good practices and approaches that have been successful in the Nordic countries will be presented at the conference. The aim is that participants will leave Iceland with a toolbox to implement and work within their field. The focus will be on keeping the conference in the spirit of Health Promotion by walking the talk i.e., participants will be inspired by our healthy environment.

The conference will run along three overarching categories: Determinants of Health and well-being, Policies within Public Health, and Data-driven Public Health. An added theme will be COVID-19 since Public Health response and proactive Public Health work have proved to be a vital component in general response worldwide.

The Nordic Public Health Conference will overlap with the 10th European Conference on Positive Psychology with one joint conference day. Furthermore, participants will have the opportunity to attend both conferences with a special reduced fee. There are many opportunities with joining forces with Positive Psychology and our hope is that by joining these conferences we can build a stronger bond between those fields. The shared aim is to increase well-being and quality of life with professional and scientific work.

Abstract submission is open until the 31st of January. We encourage people from diverse public health work to send in abstracts whether they work in Public Health practice, Policy making, or in Research.

Registration is now open.

Further information can be found on the conference website www.nphc2020.com and on the conference's Facebook page.

On behalf of the conference committee

Dora, Jenny, Solveig, and Inga