Fara beint í efnið

18. október 2019

Norræna lýðheilsuráðstefnan verður haldin á Íslandi þann 23.-25. júní 2020 / The 13th Nordic Public Health Conference in Reykjavík Iceland June 23rd – 25th 2020

Þrettánda Norræna lýðheilsuráðstefnan verður haldin á Íslandi í lok júnímánaðar 2020. Ráðstefnan verður haldin í Hörpu, hinu glæsilega ráðstefnu og tónleikahúsi okkar Íslendinga. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Heilsa og vellíðan fyrir alla – horft til framtíðar“.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Þrettánda Norræna lýðheilsuráðstefnan verður haldin á Íslandi í lok júnímánaðar 2020. Ráðstefnan verður haldin í Hörpu, hinu glæsilega ráðstefnu og tónleikahúsi okkar Íslendinga. 

Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Heilsa og vellíðan fyrir alla – horft til framtíðar“ .

Ráðstefnan er vettvangur þar sem Norðurlöndin koma saman, deila þekkingu og reynslu auk þess að efla fagleg tengsl og samstarf á sviði lýðheilsumála. Norðurlöndin eiga margt sameiginlegt bæði hvað varðar heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi og því eru fjölmörg tækifæri til að læra hvert af öðru. Á ráðstefnunni gefst gott tækifæri til að bera saman aðferðir og kerfi innan lýðheilsu milli landa. Ráðstefnan mun leggja áherslu á góð dæmi og aðferðir sem hafa borið árangur innan Norðurlandanna. Stefnt er að því að þátttakendur geti bætt í verkfærakistu sína tækjum og tólum til að vinna að lýðheilsumálum. Þess verður gætt að ráðstefnan sjálf verði heilsueflandi.

Þrjár höfuðáherslur ráðstefnunnar verða á: Áhrifaþætti heilsu og vellíðanar, stefnumótun lýðheilsu og gagnadrifið lýðheilsustarf.

Ráðstefnan mun renna saman við tíundu Evrópuráðstefnuna um jákvæða sálfræði með einum sameiginlegum ráðstefnudegi. Enn fremur munu þátttakendur eiga kost á því að skrá sig á báðar ráðstefnurnar og fá sérstakan afslátt. Það eru mörg tækifæri sem felast í því að tengja saman svið lýðheilsu og jákvæðrar sálfræði. Vonast er til að þessar ráðstefnur munu byggja sterkari brýr milli þessara fræðasviða. Bæði svið vinna að því að auka vellíðan og lífsgæði með faglegum hætti sem byggja á vísindalegum grunni.

Tekið verður á móti ágripum frá 16. október til 30. nóvember. Við hvetjum fólk til að senda inn ágrip hvort heldur sem það starfar á vettvangi lýðheilsu, við stefnumótun eða innan rannsóknargeirans.

Skráning á ráðstefnuna hefst í desember 2019.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu ráðstefnunnar www.nphc2020.com

English

The 13th Nordic Public Health Conference in Reykjavík Iceland June 23rd – 25th 2020

In the fourth week of June 2020, the 13th Nordic Public Health Conference will take place in Iceland. The home of the conference is Harpa, Reykjavík´s spectacular conference and concert hall, during the bright night season in Iceland. The theme of the conference is "Health and wellbeing for all – heading for the future".

The conference is a platform for the Nordic countries to come together, share knowledge, and experience, and cultivate professional relationships and networks in the field of public health. The Nordic countries may have many similarities both in health, welfare, and educational systems but there are great opportunities to learn from each other. The conference will be a great platform to compare strategies and systems in the field of public health between countries. Good practices and approaches that have been successful in the Nordic countries will be presented at the conference. The aim is that participants will leave Iceland with a toolbox to implement and work within their field. The focus will be on keeping the conference in the spirit of health promotion by walking the talk i.e. participants will be inspired by our healthy environment.

The conference will run along three overarching categories: Determinants of health and well-being, policies within public health, and data-driven public health. The Nordic Public Health Conference will overlap with the 10th European Conference on Positive Psychology with one joint conference day. Furthermore, participants will have the opportunity to attend both conferences with a special reduced fee. There are many opportunities with joining forces with Positive Psychology and our hope is that by joining these conferences we can build a stronger bond between those fields. The shared aim is to increase well-being and quality of life with professional and scientific work.

Abstract submission will be open from October 16th to November 30th. We encourage people from diverse public health work to send in abstracts whether they work in public health practice, policy-making, or in research.

Registration will open in December 2019.

Further information can be found on the conference website www.nphc2020.com