Fara beint í efnið

20. ágúst 2019

Námskeið fyrir kennara í kennslu geðræktarefnisins Vinir Zippýs 6. september

Námskeið fyrir leik- og grunnskólakennara í kennslu geðræktarefnisins Vinir Zippýs verður haldið föstudaginn 6. september nk. kl. 10:00 – 16:30 á Hótel Reykjavík Centrum, Aðalstræti 16 í Reykjavík. Námskeiðið og námskeiðsgögn eru kennurum að kostnaðarlausu en athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Vinir Zippýs er námsefni sem er ætlað fyrir börn á aldrinum 5–7 ára. Það miðar að því að auka félagsfærni þeirra, getu til að skilja og tjá eigin tilfinningar, finna heppilegar lausnir á vanda og takast á við mótlæti. Námsefnið er byggt upp af sex námsþáttum sem hver inniheldur fjórar kennslustundir. Kennslustundunum er lýst með nákvæmum hætti í vönduðum kennslugögnum sem fylgja námskeiði.

Skráning fer fram hér.

Frekari upplýsingar veitir Sigrún Daníelsdóttir, verkefnisstjóri geðræktar  sigrun@landlaeknir.is