Fara beint í efnið

3. janúar 2020

Morgunfundur um jákvæða starfshætti og heilsueflandi vinnustaði

Embætti landlæknis, VIRK og Vinnueftirlit ríkisins gangast fyrir morgunfundi í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands um jákvæða starfshætti og heilsueflandi vinnustaði á Grand hótel miðvikudaginn 15. janúar.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis, VIRK og Vinnueftirlit ríkisins gangast fyrir morgunfundi í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands um jákvæða starfshætti og heilsueflandi vinnustaði á Grand hótel miðvikudaginn 15. janúar.

Aðalfyrirlesari verður prófessor Illona Boniwell sem hefur verið leiðandi í jákvæðri sálfræði í Evrópu undanfarin ár og ber innlegg hennar yfirskriftina „Positive organisational practices for healthy and resilient workplaces”.

Ilona Boniwell er forstöðumaður jákvæðrar sálfræði við Anglia Ruskin háskólann í Englandi, kennir jákvæða stjórnun við l'Ecole Centrale Paris og HEC og vinnur með fyrirtækjum m.a. við stjórnendaþjálfun um allan heim sem forstöðumaður Positran.

Morgunfundurinn er sá fjórði í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi embættis landlæknis, VIRK og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum. Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.

Gunnhildur Gísladóttir sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu stýrir morgunfundinum sem hefst kl. 8.15 í Háteigi á Grand Hótel og lýkur kl. 10.00.

Morgunfundurinn er öllum opin en skrá skal mætingu hér.