Fara beint í efnið

1. mars 2019

Lög um rafrettur taka gildi 1. mars 2019

Lög um rafrettur og áfyllingar taka gildi í dag, 1. mars. Í lögunum er meðal annars kveðið á um innflutning, markaðssetningu, hvar má nota rafrettur og öryggi þessa varnings.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Lög um rafrettur og áfyllingar taka gildi í dag, 1. mars. Í lögunum er meðal annars kveðið á um innflutning, markaðssetningu, hvar má nota rafrettur og öryggi þessa varnings.

Með setningu laganna hefur tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins, um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum verið innleidd að hluta til í íslensk lög.

Samkvæmt lögunum skal ráðherra setja reglugerð með nánari ákvæðum um kröfur varðandi gæði, öryggi, merkingar og innihaldslýsingu rafrettna og áfyllinga fyrir þær. Reglugerðin mun taka gildi 1. júní 2019 og er með þeim fresti komið til móts við innflytjendur svo þeim gefist svigrúm til að laga sig að kröfum reglugerðarinnar varðandi merkingar umbúða. Þá er lagt til með ákvæði til bráðabirgða að heimilt verði að selja vörur sem ekki standast kröfur reglugerðarinnar en hafa fengið heimild til markaðssetningar fram til 1. september 2019.