Fara beint í efnið

14. október 2019

Leifur Bárðarson leysir landlækni af

Frá 14. október verður Alma D. Möller landlæknir frá vinnu í um sex vikur vegna aðgerðar á hné. Á meðan verður Leifur Bárðarson starfandi landlæknir.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Frá 14. október verður Alma D. Möller landlæknir frá vinnu í um sex vikur vegna aðgerðar á hné. Á meðan verður Leifur Bárðarson starfandi landlæknir.

Leifur er barnaskurðlæknir að mennt og starfaði áður á Landspítala, svo hjá velferðarráðuneytinu og loks hjá embætti landlæknis sem sviðsstjóri sviðs eftirlits og gæða og sem staðgengill landlæknis.