Fara beint í efnið

1. júlí 2021

Leiðbeiningar um sóttvarnir og sóttkví fyrir einstaklinga sem eru bólusettir gegn COVID-19

Sóttvarnalæknir hefur uppfært leiðbeiningar um sóttvarnir og ákveðnar undanþágur á sóttkví fyrir einstaklinga sem eru bólusettir gegn COVID-19.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Sóttvarnalæknir hefur uppfært leiðbeiningar um sóttvarnir og ákveðnar undanþágur á sóttkví fyrir einstaklinga sem eru bólusettir gegn COVID-19.

Með bólusettum einstaklingi er átt við fullbólusetta en fullri virkni bólusetningar er náð tveimur vikum eftir síðari skammt bólusetningar eða tveimur vikum eftir Janssen bólusetningu. Ef þarf tvo skammta af bóluefni til að vera fullbólusettur þá gilda sömu reglur eftir einn skammt og gilda fyrir óbólusetta einstaklinga.

Alltaf gildir að bólusettur einstaklingur sem fær einkenni sem gætu verið COVID-19 á að fara í sýnatöku sem fyrst og ekki mæta í skóla eða til vinnu, eða fara heim ef kominn þangað. Ef sýni er neikvætt skal mæting í skóla eða í vinnu ákveðin í samráði við yfirmann, þegar einkenni eru gengin yfir.

Bólusettur almenningur og ferðamenn á heimili með aðila í sóttkví þurfa ekki að vera í sóttkví og við minniháttar útsetningu s.s. ef smitaður samstarfsmaður eða samferðamaður á ferðalagi má í stað sóttkvíar beita smitgát í 14 daga. Smitgát þýðir að hafa eftirlit með einkennum og ekki umgangast viðkvæma einstaklinga.

Ef nánd við smitaðan einstakling er veruleg getur bólusettur einstaklingur þurft að fara í sóttkví skv. ákvörðun smitrakningateymis, s.s. samfelld umgengni við COVID-19 smitaðan einstakling.

Sjá nánar:Leiðbeiningar um sóttvarnir og sóttkví fyrir einstaklinga sem eru bólusettir gegn COVID-19, einnig sérstaklega um vinnusóttkví og heilbrigðisstarfsmenn.

Uppfært í október 2021: Athugið leiðbeiningar ekki lengur í gildi.

Sóttvarnalæknir