5. júní 2018
5. júní 2018
Kynningarfundur um lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum 2018
Miðvikudaginn 6. júní 2018 kl. 11:00–14:00, stendur Embætti landlæknis fyrir kynningarfundi um lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum 2018 á Hótel Héraði Egilsstöðum.
Miðvikudaginn 6. júní 2018 kl. 11:00–14:00, stendur Embætti landlæknis fyrir kynningarfundi um lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum 2018 á Hótel Héraði Egilsstöðum.
Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og áhrifaþætti þeirra. Birting lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum á Íslandi er liður í því að veita yfirsýn yfir lýðheilsu í hverju umdæmi fyrir sig í samanburði við landið í heild.
Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitarfélögum og heilbrigðisþjónustu að greina stöðuna í umdæmunum, finna styrkleika og veikleika og skilja þarfir íbúanna þannig að þau geti unnið saman að því að bæta heilsu þeirra og líðan.
Dagskrá:
11:00 Ávarp, Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs
11:15 Hvers vegna lýðheilsuvísar? Alma D. Möller, landlæknir
11:30 Lýðheilsuvísar tengdir lifnaðarháttum, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá Embætti landlæknis
11:50 Hádegishlé - boðið verður uppá léttan hádegisverð
12:20 Lýðheilsuvísar tengdir heilsu og sjúkdómum, Sigríður Haraldsdóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga hjá Embætti landlæknis
12:40 Nýting lýðheilsuvísa hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga
13:00 Heilsueflandi Austurland, Eva Jónudóttir, Seyðisfirði
13:20 Heilsueflandi grunnskóli, Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir, aðstoðarskólastjóri Egilsstaðaskóla
13:40 Pallborðsumræður
14:00 Dagskrárlok
Fundarstjóri: Björg Björnsdóttir, bæjarfulltrúi á Fljótsdalshéraði
Upptaka frá fundinum er aðgengileg á vef embættis landlæknis (sett inn 8. júní).
Kynningarfundurinn er öllum opinn en þátttakendur eru hvattir til þess að skrá sig hér á vef Embættis landlæknis.