Fara beint í efnið

18. febrúar 2021

Krafa um neikvæð PCR-próf fyrir COVID-19 við komu til Íslands

Allir sem koma til Íslands eftir meira en sólarhringsdvöl á skilgreindu áhættusvæði þurfa að sýna vottorð um neikvætt PCR-próf gegn SARSCoV-2/COVID-19 Ath. Viðkomandi reglur eru ekki lengur í gildi. Frétt uppfærð í ágúst 2021.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Athugið. Þessar reglur eru ekki lengur í gildi. Frétt uppfærð í ágúst 2021.

Allir sem koma til Íslands eftir meira en sólarhringsdvöl á skilgreindu áhættusvæði þurfa að sýna vottorð um neikvætt PCR-próf gegn SARSCoV-2/COVID-19 áður en þeir stíga um borð í flugvél eða skip á leið til landsins og einnig við komuna skv. reglugerð nr. 161/2021 sem tekur gildi 19. febrúar 2021.

Leiðbeiningar sóttvarnalæknis um vottorð um neikvætt PCR-próf

  • Neikvæð niðurstaða á PCR-prófi (RNA) fyrir SARS-CoV-2/COVID-19.

  • Vottorði skali framvísa við byrðingu í brottfararlandi og aftur á landamærum við komu.

  • Hafa verið tekið innan við 72 klukkustundum fyrir brottför.

  • Ef farþegi er að koma með tengiflugi þá telur 72 klst. frá byrðingu fyrsta flugleggjar.

  • Þarf að vera á ensku eða einhverju Norðurlandamáli (íslensku, dönsku, norsku, sænsku) þó ekki finnsku.

  • Vottorð á öðru tungumáli má taka gilt ef þýðing stimpluð af löggildum skjalaþýðanda fylgir á einu af tungumálunum sem krafist er.

  • Fornafn og eftirnafn og fæðingardagur þess sem sýni var tekið frá (sambærilegt við ferðaskilríki).

  • Dagsetning sýnatöku.

  • Heiti og símanúmer rannsóknarstofu.

  • Niðurstöðu rannsóknar skal forskrá rafrænt ásamt öðrum upplýsingum fyrir brottför.

  • Hraðgreiningarpróf (mótefnavakapróf/e. antigen) eru ekki tekin gild.

Undanþegnir því að framvísa neikvæðu PCR-prófi eru:

  • Þeir sem hafa vottorð um afstaðna COVID-19 sýkingu (jákvætt PCR-próf sem er eldra en 14 daga gamalt eða mæld mótefni (IgG)).

  • Þeir sem hafa gilt bólusetningarvottorð vegna COVID-19.

  • Börn fædd 2005 og síðar.

  • Þeir sem hafa dvalið skemur en sólarhring erlendis á skilgreindu áhættusvæði.

  • Áhafnir og ákveðnar stéttir á vinnuferðum erlendis, enda hafi þær undanþágubréf frá sóttvarnalækni.

Til athugunar

  • Einstaklingum sem ekki geta framvísað vottorði við komu til landsins verður annað hvort snúið til baka eða þeim gert að greiða sekt.

  • Íslenskum ríkisborgurum og þeir sem eru með dvalarleyfi á Íslandi verður þó ekki meinað að koma til landsins.

Sóttvarnalæknir