Fara beint í efnið

20. júlí 2021

Íbúar á Íslandi og aðrir sem hafa tengslanet á Íslandi eru beðnir um að fara í sýnatöku vegna COVID-19 sem fyrst eftir komuna til landsins

Sóttvarnalæknir beinir þeim tilmælum til þeirra sem eru bólusettir eða eru með sögu um fyrri COVID-19 sýkingu og eru búsettir á Íslandi, eða hafa hér tengslanet, að fara í sýnatöku vegna COVID-19 við komuna hingað til lands þrátt fyrir neikvætt PCR- eða antigen próf, sem tekið var fyrir brottför.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Sóttvarnalæknir beinir þeim tilmælum til þeirra sem eru bólusettir eða eru með sögu um fyrri COVID-19 sýkingu og eru búsettir á Íslandi, eða hafa hér tengslanet, að fara í sýnatöku vegna COVID-19 við komuna hingað til lands þrátt fyrir neikvætt PCR- eða antigen próf, sem tekið var fyrir brottför. Sýnatöku er hægt að panta á heilsuvera.is (með rafrænum skilríkjum) og fá á landamærum í Keflavík eða eins fljótt og auðið er eftir komuna til Íslands, í Reykjavík á Suðurlandsbraut 34 eða hjá heilsugæslunni utan höfuðborgarsvæðis. Meðan beðið er niðurstöðu skal sérstaklega huga að smitgát. Þannig eru ferðamenn einnig beðnir að halda sig sem mest til hlés fyrstu dagana eftir heimkomu, heimsækja ekki viðkvæma einstaklinga, eins og þá sem hafa undirliggjandi sjúkdóma, aldraða eða sjúklinga á spítölum, og fara í sýnatöku án tafar finni þeir fyrir einkennum sem bent geta til COVID-19.

Útbreiðsla kórónuveirunnar hefur aukist í íslensku samfélagi síðustu daga. Þann 1. júlí var lögð niður krafa um sýnatöku á landamærum hjá bólusettum og hjá einstaklingum með fyrri sýkingu af völdum COVID-19. Að undanförnu hefur hins vegar borist fjöldi smita yfir landamærin einkum með full bólusettum einstaklingum og valdið nýrri bylgju faraldurs innanlands. Í ljós hefur komið að smitaðir einstaklingar sem hingað koma og hafa víðtækt tengslanet hér á landi eru líklegri til að smita aðra en þeir sem lítið tengslanet hafa. Öflug skimun á landamærum er mikilvægt tæki til að hindra dreifingu veirunnar yfir landamærin sem er forsenda þess að hafa innanlandstakmarkanir í lágmarki.

[English]

Sóttvarnalæknir