Fara beint í efnið

2. ágúst 2019

Hvenær mega börn sem greinst hafa með sýkingu af völdum eiturmyndandi (STEC) E. coli fara aftur í leikskóla?

Flestir sem greinst hafa með sýkingu af völdum STEC E. coli losa sig við bakteríuna á fyrstu þremur vikum eftir byrjun veikinda en börn geta hins vegar verið smitandi lengur og í undantekningartilfellum í nokkra mánuði.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Flestir sem greinst hafa með sýkingu af völdum STEC E. coli losa sig við bakteríuna á fyrstu þremur vikum eftir byrjun veikinda en börn geta hins vegar verið smitandi lengur og í undantekningartilfellum í nokkra mánuði. Þar sem að bakterían er mjög smitandi, þá þarf að gæta fyllstu varúðar til að koma í veg fyrir smit í samfélaginu og sérstaklega í leikskólum.

Sóttvarnalæknir mælist til þess að börn sem greinst hafa með STEC E. coli fari ekki í dagvistun, leikskóla eða skóla fyrr en að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  1. Niðurgangur og önnur einkenni sýkingarinnar eru gengin yfir.

  2. Saurprufa frá einstaklingi sem hefur verið með eðlilegar hægðir í a.m.k. 48 klst. sýnir engin merki um STEC E. coli. Ekki er mælt með endurteknum sýnatökum hjá einstaklingum með þekkta STEC E. coli sýkingu sem enn hafa niðurgang eða linar hægðir. Ef einstaklingar sem eru með eðlilegar hægðir greinast með bakteríuna þá er mælt með endurtekinni rannsókn eftir tvær til þrjár vikur.

Ofangreind tilmæli eiga einnig við fullorðna einstaklinga sem vinna við matargerð, framreiðslu matvæla, barnagæslu eða aðhlynningu sjúklinga og annarra viðkvæmra einstaklinga.

Sóttvarnalæknir vill einnig ítreka að almennt hreinlæti, handþvottur og handsprittun er áhrifaríkasta leiðin til að koma í veg fyrir saursmit af völdum STEC E. coli.

Sóttvarnalæknir