Fara beint í efnið

10. júlí 2020

Heimkomusmitgát vegna COVID-19

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að frá og með 13. júlí nk. skuli þeir sem eru búsettir hér á landi eða eru íslenskir ríkisborgarar og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins viðhafa svokallaða heimkomusmitgát í 4-5 daga og þá fara í aðra sýnatöku.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að frá og með 13. júlí nk. skuli þeir sem eru búsettir hér á landi eða eru íslenskir ríkisborgarar og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins viðhafa svokallaða heimkomusmitgát í 4−5 daga og þá fara í aðra sýnatöku. Ef síðari sýnataka er neikvæð er heimkomusmitgát hætt. Er þetta gert til að minnka líkurnar á að röng niðurstaða á prófi á landamærum geti leitt til hópsmita á Íslandi.

Um einstaklinga sem ber að viðhafa heimkomusmitgát gildir að þeir skuli:

  • ekki fara á mannamót eða veislur þar sem fleiri en tíu manns eru saman komnir,

  • ekki vera í samneyti við fólk sem er í aukinni áhættu fyrir alvarleg veikindi/viðkvæma hópa,

  • gæta að tveggja metra reglunni í samskiptum við aðra,

  • ekki heilsa með handabandi og forðast faðmlög,

  • huga vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum.

Einstaklingum sem ber að viðhafa heimkomusmitgát er hins vegar heimilt að:

  • nota almenningssamgöngur til að komast á áfangastað,

  • fara í bíltúra,

  • fara í búðarferðir,

  • hitta vini og kunningja með ofangreindum takmörkunum.

Einstaklingum sem ber að viðhafa heimkomusmitgát þurfa að fara í aðra sýnatöku 4−5 dögum eftir komu til landsins, þeim að kostnaðarlausu. Fái þeir neikvæða niðurstöðu úr síðari sýnatöku ber þeim ekki lengur að viðhafa heimkomusmitgát en jákvæð niðurstaða leiðir alltaf til einangrunar.

Þótt þessar breytingar á reglugerð nái eingöngu til íslenskra ríkisborgara og þeirra sem búa hér á landi eru fjölskyldur þeirra og aðrir sem hafa víðfeðmt tengslanet á Íslandi hvattir til að fylgja sömu reglum.

Lesa nánar:

  • Frétt á vef Stjórnarráðs Íslands.

Sóttvarnalæknir