9. mars 2020
9. mars 2020
Fréttatilkynning vegna skilgreindra áhættusvæða vegna COVID-19
Skíðasvæði í Ölpunum eru nú skilgreind áhættusvæði vegna veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómi. Þetta var ákveðið af sóttvarnalækni að viðhöfðu samráði við ríkislögreglustjóra.
Skíðasvæði í Ölpunum eru nú skilgreind áhættusvæði vegna veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómi. Þetta var ákveðið af sóttvarnalækni að viðhöfðu samráði við ríkislögreglustjóra.
Umrædd svæði eru í fjórum löndum; Austurríki, Sviss, Þýskalandi og Frakklandi. Þessi svæði bætast við áðurnefnd áhættusvæði (Kína, Suður-Kórea, Íran og Ítalía auk Ischgl í Austurríki).
Nýju svæðin eru t.d. Val Thorens, Chamonix, Zermatt, St. Anton, Ischgl, Serfaus, Sölden, Garmisch, Hintertux, Kitzbuhel, Saalbach, Wagrein o.fl.
Landsvæðin eru eftirfarandi:
Austurríki:
Öll skíðasvæði
Sviss:
Öll skíðasvæði
Þýskaland:
Frakkland:
Slóvenía
Öll skíðasvæði
Íslendingar sem hafa dvalið á þessum svæðum frá 29. febrúar eiga að fara í 14 daga sóttkví frá því að þeir yfirgáfu viðkomandi svæði.
Þeir sem hafa verið á þessum svæðum og finna til einkenna eru hvattir til að hafa samband við síma 1700, tilgreina að þeir hafi verið á hættusvæði og fá ráðgjöf um næstu skref.
Vegna aukinna fjölda staðfestra tilvika COVID-19 hjá fólki hér á landi og erlendis sem hefur verið á skíðasvæðum í Ölpunum telur sóttvarnalæknir aukna áhættu á smiti á því svæði. Því er gripið til þess að skilgreina þessi svæði sem áhættusvæði.
Ljóst er að fjöldi Íslendinga er á þessum svæðum nú um stundir. Er þeir hvattir til að skrá sig i grunn borgaraþjónustunnar sem nálgast má á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.