Fara beint í efnið

6. mars 2019

Flensur og aðrar pestir 9. vika 2019

Inflúensa A var staðfest hjá 21 einstaklingi, sem er fækkun miðað við undanfarandi vikur, sjá vef veirufræðideildar Landspítala. Þar af greindust 13 einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 8 með inflúensu A(H3N2).

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Inflúensa A var staðfest hjá 21 einstaklingi, sem er fækkun miðað við undanfarandi vikur. Þar af greindust 13 einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 8 með inflúensu A(H3N2). Við skoðun á aldursdreifingu virðist inflúensa A(H3N2) vera algengari hjá eldri kynslóðinni en inflúensa A(H1N1)pdm09 hefur oftar verið staðfest hjá börnum og miðaldra fólki. Aðeins tveir hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er þessum vetri. Alls 14 einstaklingar leituðu á Landspítala með staðfesta inflúensu, sem er fækkun borið saman við undanfarandi viku, þar af voru 10 inniliggjandi.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Samtals 145 einstaklingar leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur með einkenni inflúensu samkvæmt klínísku mati læknis, sem er fækkun miðað við vikuna á undan.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensa er nú útbreidd á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Yfirlit fyrir 9. viku ársins 2019 hafa ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Þeim fækkar enn sem eru með inflúensu að klínísku mati læknis. Færri greindust með staðfesta inflúensu borið saman við vikurnar þar á undan og einnig fækkaði þeim sem greindust með staðfesta inflúensu á Landspítala. Inflúensan gæti því verið á undanhaldi þennan vetur.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Enn er töluvert um staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV), en í síðustu viku var veiran staðfest hjá níu einstaklingum. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum er þekktur áhættuhópur.

Meltingarfærasýkingar. Fjöldi tilkynninga frá heilsugæslunni og bráðamóttökum um niðurgang var nokkuð lægri í febrúar en en á sambærilegum árstíma síðustu ára.

Í síðustu viku (9. viku) var nóróveira staðfest hjá þremur einstaklingum. Undanfarandi vikur hafa stöku einstaklingar greinst með nóró- og sapóveirur. Sl. fimm vikur hefur enginn greinst með staðfesta rótaveiru og lítið hefur verið um aðrar iðrakveisuveirur.

Sóttvarnalæknir