Fara beint í efnið

8. mars 2018

Flensur og aðrar pestir - 9. vika (26. febrúar.– 4. mars) 2018

í síðustu viku (9. viku) greindust 43 einstaklingar með inflúensu. Inflúensa B veiran virðist valda fleiri sýkingum, en hún var staðfest hjá 31 einstaklingi.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Í síðustu viku (9. viku) greindust 43 einstaklingar með inflúensu. Inflúensa B veiran veldur flestum sýkingum, en hún var staðfest hjá 31 einstaklingi, sjá vef veirufræðideildar Landspítala. Alls greindust 12 einstaklingar með inflúensu A, þar af voru átta með inflúensu A(H3) og fjórir með inflúensu A(H1)pdm09. Fólk á öllum aldri greindist með inflúensu B og inflúensu A(H1)pdm09, en inflúensa A(H3) var oftast staðfest meðal aldraðra.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Í 9. viku fækkaði þeim nokkuð sem greindust með inflúensulík einkenni í heilsugæslunni og bráðamóttökum borið saman við vikuna á undan, sjá mynd 1.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan var áfram í mikilli útbreiðslu á meginlandi Evrópu í 8. viku (19.–25. febrúar), sjá inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Inflúensa B var enn ríkjandi en bæði inflúensa A(H3) og inflúensa A(H1)pdm09 hafa greinst á meginlandinu en hlutfall þessara veirustofna er breytilegt milli landa.

Innlagnir vegna inflúensu á Landspítala. Samkvæmt upplýsingum frá sýkingavarnadeild Landspítala var áfram töluvert af innlögnum vegna inflúensu í 9. viku. Mynd 2 sýnir aldursdreifingu þeirra sem lagðir voru inn á Landspítala með inflúensu frá því í 37. viku 2017. Flestir þeirra voru einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma eða aldraðir.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í 9. viku var Respiratory Syncytial veiran (RSV)  staðfest hjá 17 einstaklingum sem er mikil aukning borið saman við vikuna á undan en þá var hún staðfest hjá fjórum einstaklingum. Veiran greindist hjá fólki á öllum aldri frá 1 mánaða til 92 ára og meðalaldurinn var 43 ár. Í síðustu viku var human metapneumóveira (hMPV) staðfest hjá átta einstaklingum sem voru á öllum aldri frá 6–96 ára, með meðalaldurinn 53 ár. Þessi aldursdreifing sýnir að bæði RSV og hMPV leggjast á alla aldurshópa þó þær séu þekktar fyrir að valda alvarlegustum einkennum hjá ungum börnum.

Samantekt og mat á öndunarfæraveirum síðastliðnar vikur. Í 9. viku dró úr inflúensulíkum einkennum í samfélaginu sem bendir til að faraldurinn sé í rénun. Á sama tíma greinist mikið af öndunarfæraveirum á rannsóknarstofu og álag er töluvert á sjúkrahúsin.

Meltingarfærasýkingar. Töluvert var um niðurgang í 9. viku, borið saman við sama tímabil á síðastliðnum árum, sjá mynd 3. Mestur er niðurgangurinn meðal barna á aldrinum 1–4 ára. Líkleg skýring á því er aukin tíðni á rótaveirusýkingu meðal ungra barna.

Sóttvarnalæknir