Fara beint í efnið

27. febrúar 2020

Flensur og aðrar pestir - 8. vika 2020 (17.-23. febrúar)

Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 26 einstaklingum, sem er nokkuð færri tilfelli en greindust vikurnar á undan.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala og fjöldi sýna. Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 26 einstaklingum, sem er nokkuð færri tilfelli en greindust vikurnar á undan. Þar af voru 6 með inflúensu A(H1) pdm09, átta með inflúensu A(H3), 1 með inflúensu A án nánari tilgreiningar og 11 með inflúensu B. Frá því um mánaðarmótin september – október hafa samtals 258 einstaklingar verið greindir með staðfesta inflúensu. Flestir hafa greinst á höfuðborgarsvæðinu en inflúensan hefur líka verið staðfest víða annars staðar.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Fjöldi þeirra sem leituðu til læknis með einkenni inflúensu í 8. viku dróst saman miðað við vikuna á undan en í síðustu viku (8. viku) fækkaði einstaklingum með inflúensulík einkenni skv. upplýsingum frá heilsugæslunni og bráðamóttökum.

Innlagnir á sjúkrahús. Alls 6 einstaklingar lágu á Landspítala með staðfesta inflúensu í síðustu viku, þar af voru 2 með A(H3), 2 með A(H1)pdm09 og 2 með inflúensu B.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan hefur náð mikilli útbreiðslu í flestum í löndum Evrópusambandsins. Bæði inflúensa A(H3 og H1pdm09) og inflúensa B greinast, sjá nánar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Heldur virðist draga úr inflúensunni, heldur færri voru með staðfesta inflúensu í síðustu viku borið saman við vikuna á undan og einnig dró úr fjölda þeirra sem voru með inflúensulík einkenni. Hugsanlega hefur inflúensan náð hámarki þennan veturinn.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í 8. viku þessa árs var Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) staðfest hjá 28 einstaklingum sem er svipað og vikurnar á undan. Alls voru 5 með Human Metapneumóveiru (hMPV). Einnig hefur greinst nokkuð af öðrum öndunarfæraveirum.

Er erfitt að greina á milli nýrrar kórónaveirusýkingu, COVID-19, inflúensu og annarra öndunarfæraveira? Einkenni kórónaveirusýkinga geta verið svipuð inflúensu í upphafi sjúkdóms. Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega og lýsa sér með hita, hósta, hálssærindum, höfuðverk, vöðvaverkjum og almennri vanlíðan. Kórónaveiran getur snögglega valdið neðri loftvegasýkingu með lungnabólgu sem getur gert öndun erfiða, en leiðir sjaldnar til einkenna frá efri öndunarfærum eins og kvefi. Kann það að valda vandamálum við greiningu sjúkdómanna. Þess vegna er mikilvægt að fá góðar upplýsingar um ferðasögu hjá þeim sem eru með hita, hósta, vöðvaverk og almenna vanlíðan þegar slíkir einstaklingar leita til heilbrigðisþjónustunnar.

Eins og alltaf eru þeir sem fá þessi einkenni hvattir til þess að halda sig heima og minnt er á að til eru öflug lyf gegn inflúensu (Tamiflu® hylki og Relenza® innúðaðalyf) sem geta dregið úr einkennum inflúensu og flýtt bata ef þau eru tekin innan tveggja sólarhringa frá upphafi einkenna. Þessi lyf eru lyfseðilskyld. Þess má geta að þessi lyf virka ekki gegn kórónaveirunni.

Meltingarfærasýkingar. Svipaður fjöldi leitaði á heilsugæsluna og á bráðamóttökur með niðurgang síðastliðna viku borið saman við meðaltal sömu viku sl. 5 ár. Í síðustu viku voru 9 einstaklingar með staðfesta sýkingu af völdum nóróveiru og 6 greindust með rótaveirusýkingu. Nóróveiran virðist því enn vera í dreifingu í samfélaginu. Einnig greindust adenóveira, sapóveira og rótaveira stöku sinnum.

Sóttvarnalæknir