Fara beint í efnið

27. febrúar 2019

Flensur og aðrar pestir 8. vika 2019

Í síðustu viku (8. viku) var inflúensa A staðfest hjá 32 einstaklingum, sem er nokkur aukning miðað við undanfarandi vikur

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Í síðustu viku var inflúensa A staðfest hjá 32 einstaklingum, sem er nokkur aukning miðað við undanfarandi vikur. Þar af greindust 19 einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 13 með inflúensu A(H3N2). Við skoðun á aldursdreifingu sést að inflúensa A(H3N2) er algengari meðal eldri kynslóðarinnar en inflúensa A(H1N1)pdm09 hefur oftar verið staðfest hjá börnum og miðaldra fólki. Aðeins tveir hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er þessum vetri. Alls 26 einstaklingar leituðu á Landspítala með staðfesta inflúensu, sem er aukning borið saman við undanfarandi viku, þar af voru 11 inniliggjandi.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Alls 167 einstaklingar leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur með einkenni inflúensu samkvæmt klínísku mati læknis, sem er fækkun miðað við vikuna á undan.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensa er nú útbreidd á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Gögn fyrir 8. viku ársins 2019 hafa ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Þeim fækkar sem eru með inflúensu að klínísku mati læknis, sjá mynd 1. En nokkuð fleiri greindust með staðfesta inflúensu borið saman við vikurnar þar á undan og aukning var á fjölda þeirra sem greindust með staðfesta inflúensu á Landspítala.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Enn er töluvert um staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV), en í síðustu viku var veiran staðfest hjá 11 einstaklingum. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum er þekktur áhættuhópur.

Meltingarfærasýkingar. Fjöldi tilkynninga frá heilsugæslunni og bráðamóttökum um niðurgang hefur verið nokkuð lægri síðastliðnar vikur en á sambærilegum árstíma síðustu ára.

Í síðustu viku (8. viku) var nóróveira staðfest hjá tveimur einstaklingum. Undanfarandi vikur hafa stöku einstaklingar greinst með nóró-, sapó- og adenóveirur, en minna hefur greinst af rótaveiru á þessu tímabili.

Sóttvarnalæknir