Fara beint í efnið

20. febrúar 2020

Flensur og aðrar pestir – 7. vika 2020

Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 34 einstaklingum, sem er svipað borið saman við vikurnar á undan.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala og fjöldi sýna. Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 34 einstaklingum, sem er svipað borið saman við vikurnar á undan. Þar af voru 14 með inflúensu A(H1) pdm09, sjö með inflúensu A(H3), einn með ótýpugreinda inflúensu A og 12 með inflúensu B. Frá því um mánaðarmótin september – október hafa samtals 232 einstaklingar verið greindir með staðfesta inflúensu. Flestir hafa greinst á höfuðborgarsvæðinu en inflúensan hefur líka verið staðfest víða annars staðar.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Fjöldi þeirra sem leituðu til læknis með einkenni inflúensu í 7. viku jókst aðeins miðað við vikuna á undan en í síðustu viku (7. viku) fjölgaði einstaklingum með inflúensulík einkenni lítillega skv. upplýsingum frá heilsugæslunni og bráðamóttökum.

Innlagnir á sjúkrahús. Alls sjö einstaklingar lágu á Landspítala með staðfesta inflúensu í síðustu viku, þar af voru tveir með A(H3), þrír með A(H1)pdm09 og tveir með inflúensu B.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan hefur náð mikilli útbreiðslu í flestum í löndum Evrópusambandsins. Bæði inflúensa A(H3 og H1pdm09) og inflúensa B greinast, sjá nánar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan færist enn í aukana, svipaður fjöldi var með staðfesta inflúensu í síðustu viku borið saman við vikuna á undan en fjöldi með inflúensulík einkenni jókst aðeins og sennilega er inflúensan nú að ná hámarki.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í 7. viku þessa árs var Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) staðfest hjá 22 einstaklingum sem er svipað og vikurnar á undan. Alls voru fimm með Human Metapneumóveiru (hMPV). Einnig hefur greinst nokkuð af öðrum öndunarfæraveirum.

Er erfitt að greina á milli nýrrar kórónaveiru (COVID-19), inflúensu og annarra öndunarfæraveira? Einkenni kórónaveirusýkinga geta verið svipuð inflúensu í upphafi sjúkdóms. Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega og lýsa sér með hita, hósta, hálssærindum, höfuðverk, vöðvaverkjum og almennri vanlíðan. Kórónaveiran getur snögglega valdið neðri loftvegasýkingu með lungnabólgu sem getur gert öndun erfiða, en leiðir sjaldnar til einkenna frá efri öndunarfærum eins og kvefi. Kann það að valda vandamálum við greiningu sjúkdómanna. Þess vegna er mikilvægt að fá góðar upplýsingar um ferðasögu hjá þeim sem eru með hita, hósta, vöðvaverk og almenna vanlíðan þegar slíkir einstaklingar leita til heilbrigðisþjónustunnar.

Eins og alltaf eru þeir sem fá þessi einkenni hvattir til þess að halda sig heima og minnt er á að til eru öflug lyf gegn inflúensu (Tamiflu® hylki og Relenza® innúðaðalyf) sem geta dregið úr einkennum inflúensu og flýtt bata ef þau eru tekin innan tveggja sólarhringa frá upphafi einkenna. Þessi lyf eru lyfseðilskyld. Þess má geta að þessi lyf virka ekki gegn kórónaveirunni.

Meltingarfærasýkingar. Svipaður fjöldi leitaði á heilsugæsluna og á bráðamóttökur með niðurgang síðastliðna viku borið saman við meðaltal sömu viku sl. fimm ár. Í síðustu viku voru tólf einstaklingar með staðfesta sýkingu af völdum nóróveiru. Nóróveiran virðist því enn vera í dreifingu í samfélaginu. Einnig greindust adenóveira, sapóveira og rótaveira stöku sinnum.

Sóttvarnalæknir