Fara beint í efnið

13. febrúar 2019

Flensur og aðrar pestir 6. vika 2019

Í síðustu viku var inflúensa A staðfest hjá 21 einstaklingi. Þar af greindust 11 með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 10 með inflúensu A(H3N2), sem er aukning miðað við vikurnar á undan.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Í síðustu viku var inflúensa A staðfest hjá 21 einstaklingi. Þar af greindust 11 með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 10 með inflúensu A(H3N2), sem er aukning miðað við vikurnar á undan, einkum í fjölda þeirra sem greindust með A(H3N2). Aðeins tveir hafa greinst með inflúensu af B stofni það sem af er þessum vetri. Fólk á öllum aldri greinist með bæði inflúensu A(H1N1)pdm09 og inflúensu A(H3N2). Samtals 16 leituðu á Landspítalann með staðfesta inflúensu, sem er nokkur aukning, en einungis fimm voru inniliggjandi.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Í viku 6. viku voru samtals 153 einstaklingar með inflúensulík einkenni sem leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur, sem er aukning miðað við undanfarnar vikur.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensa eykst nú á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Gögn fyrir 6. viku ársins 2019 hafa ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan breiðist hratt út í samfélaginu, en er nokkuð seinna á ferðinni en fyrri ár. Aukning var á fjölda þeirra sem leituðu til heilsugæslunnar vegna inflúensulíkra einkenna og á fjölda þeirra sem greindust með staðfesta inflúensu. En ekki var mikið um innlagnir á Landspítalann vegna inflúensu.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Enn er töluvert um staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV), en í síðustu viku var veiran staðfest hjá 11 einstaklingum. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum eru þekktur áhættuhópur.

Meltingarfærasýkingar. Fjöldi tilkynninga frá heilsugæslunni og bráðamóttökum um niðurgang í 6. viku var nokkuð lægri en á sambærilegum árstíma sl. ár.

Stöku einstaklingar greinast með nóró- og adenóveirur, en minna hefur greinst af rótaveiru á þessu tímabili.

Sóttvarnalæknir