Fara beint í efnið

3. janúar 2018

Flensur og aðrar pestir - 52. vika 2017

Á síðustu vikum hefur orðið nokkur aukning í fjölda þeirra sem greinast með inflúensu eins og sjá má á vef veirufræðideildar Landspítala.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala

Á síðustu vikum hefur orðið nokkur aukning í fjölda þeirra sem greinast með inflúensu. Í síðustu viku greindist svipaður fjöldi með inflúensu A(H3) og inflúensu B. Inflúensan greindist oftast hjá fullorðnum og öldruðum einstaklingum, minna er um að inflúensa greinist hjá börnum.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum

Á sama tíma hefur fjölgun orðið á þeim sem greinast með inflúensu lík einkenni í heilsugæslunni og á bráðamóttökum. Sjá mynd 1.

Staðan á meginlandi Evrópu

Inflúensan eykst nú á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Bæði inflúensa A og inflúensa B greinist.

Innlagnir vegna inflúensu á Landspítala

Aukning er á fjölda þeirra sem greinast með inflúensu á Landspítalanum. Mynd 2 sýnir aldurdreifingu þeirra sem hafa þurft innlagnar við vegna inflúensu frá því í 37. viku á þessu hausti. Flestir sem leggjast inn vegna inflúensu eru einstaklingar með undirliggjandi sjúkóma eða aldraðir.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur

Fjöldi þeirra sem greinast með staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV), hefur aukist á sl. vikum. Í síðustu viku var sýkingin staðfest hjá 19 einstaklingum. Börn á fyrsta og öðru aldursári greindustu oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungabörnum er þekktur áhættuhópur. Á síðastliðnum fjórum vikum hafa samtals fjórtán einstaklingar greinst með human metapneumóveiru sem getur valdið svipuðum einkennum hjá börnum og RSV.

Samantekt og mat á öndunarfæraveirum síðastliðnar vikur

Bæði Inflúensa A og B virðast nú breiðast út í samfélaginu og inflúensan er oftast staðfest hjá fullorðnum og öldruðum. Fjölgun er á inflúensugreiningum meðal þeirra sem leita á Landspítalann, en þeir sem leggjast inn eru aðallega einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma eða aldraðir. RSV veiran virðist einnig breiðast út og flestar greiningar eru hjá ungum börnum og öldruðum einstaklingum og einnig er eitthvað um metapneumóveirusýkingar.

Meltingarfærasýkingar

Aukning var á fjölda tilkynninga um niðurgang frá heilsugæslunni og bráðamóttökum eins og ávallt sést þessum árstíma, sjá mynd 3 og stöku einstaklingar greindust með iðrakveisuveirur í viku hverri, sjá nánar á vef veirufræðideildar Landspítala. Bæði nóró- og sapóveiru hafa greinst auk stöku róta- og adenóveirugreininga.

Sóttvarnalæknir