Fara beint í efnið

3. janúar 2019

Flensur og aðrar pestir - 51. og 52. vika 2018

Frá því um miðjan október 2018 hefur inflúensa A verið staðfest hjá 46 einstaklingum.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Frá því um miðjan október 2018 hefur inflúensa A verið staðfest hjá 46 einstaklingum. Nokkrir þeirra sem hafa greinst eru ferðamenn sem smituðust erlendis en flestir einstaklingar hafa smitast hér á landi. Aðeins tveir einstaklingar hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er þessum vetri en inflúensa B var ríkjandi seinni part síðasta inflúensutímabils.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Í vikum 51–52 voru samtals 80 sjúklingar með inflúensulík einkenni sem leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur, sjá mynd 1.

Staðan á meginlandi Evrópu. Lítið hefur verið um inflúensu á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Gögn fyrir síðustu 2 vikur ársins 2018 hafa ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan virðist vera að byrja að breiðast út í samfélaginu um þessar mundir eins og fyrri ár.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala hafa samtals 80 einstaklingar greinst með staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) frá miðjum nóvember. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum eru þekktur áhættuhópur.

Meltingarfærasýkingar. Fjöldi tilkynninga frá heilsugæslunni og bráðamóttökum um niðurgang er eins og gera má ráð fyrir á þessum árstíma.

Mest hefur greinst af nóró- og adenóveirum í iðrasýkingum frá því í september. Lítið hefur verið um rótaveiru á þessu tímabili.

Sóttvarnalæknir