Fara beint í efnið

6. febrúar 2020

Flensur og aðrar pestir - 5. vika 2020

Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 29 einstaklingum, sem er aukning borið saman við vikurnar á undan. Þar af voru 10 með inflúensu A(H1) pdm09, 11 með inflúensu A(H3) og átta með inflúensu B/Victoria.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala og fjöldi sýna. Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 29 einstaklingum, sem er aukning borið saman við vikurnar á undan. Þar af voru 10 með inflúensu A(H1) pdm09, 11 með inflúensu A(H3) og átta með inflúensu B/Victoria. Frá því um mánaðarmótin september-október hafa samtals 169 einstaklingar verið greindir með staðfesta inflúensu. Flestir hafa greinst á höfuðborgarsvæðinu en inflúensan hefur líka verið staðfest víða annars staðar.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Fjöldi þeirra sem leituðu til læknis með einkenni inflúensu í 5. viku jókst töluvert miðað við vikurnar á undan en í síðustu viku (5.viku) varð nánast tvöföldun á fjölda einstaklinga með inflúensulík einkenni skv. upplýsingum frá heilsugæslunni og bráðamóttökum.

Innlagnir á sjúkrahús. Alls fimm einstaklingar þurftu innlögn á Landspítala vegna staðfestrar inflúensu í síðustu viku, þar af voru þrír 67 ára og eldri. Alls þrír voru með A(H3), einn með A(H1)pdm09 og einn með B/Victoria.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan eykst í löndum Evrópusambandsins, og hefur náð mikilli útbreiðslu í flestum löndum. Bæði inflúensa A(H3 og H1pdm09) og inflúensa B greinast, sjá nánar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan færist nú í aukana, aukning var í fjölda þeirra sem voru með staðfesta inflúensu í síðustu viku borið saman við vikuna á undan og fjöldi með inflúensulík einkenni eykst töluvert. Inflúensan er samkvæmt þessu að breiðast talsvert út í samfélaginu þessar vikurnar.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í 5. viku þessa árs voru 22 einstaklingar með staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) sem er töluverð aukning miðað við vikurnar á undan. Alls voru 10 greindir með Human Metapneumóveiru (hMPV), sem er svipað og var í vikunni á undan. Einnig hefur töluvert greinst af öðrum öndunarfæraveirum.

Er erfitt að greina á milli nýrrar kórónaveiru, inflúensu og annarra öndunarfæraveira Einkenni Kórónaveiru-sýkinga geta verið svipuð inflúensu í upphafi sjúkdóms. Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega og lýsa sér með hita, hósta, hálssærindum, höfuðverk, vöðvaverkjum og almennri vanlíðan. Kórónaveiran getur snögglega valdið neðri loftvegasýkingu með lungnabólgu sem getur gert öndun erfiða, en leiðir sjaldnar til einkenna frá efri öndunarfærum eins og kvefi. Kann það að valda vandamálum við greiningu sjúkdómanna. Þess vegna er mikilvægt að fá góðar upplýsingar um ferðasögu hjá þeim sem með hita, hósta, vöðvaverk og almenna vanlíðan þegar slíkir einstaklingar leita til heilbrigðisþjónustunnar.Eins og alltaf eru þeir sem fá þessi einkenni hvattir til þess að halda sig heima og minnt er á að til eru öflug lyf gegn inflúensu (Tamiflu® hylki og Relenza® innúðaðalyf) sem geta dregið úr einkennum inflúensu og flýtt bata ef þau eru tekin innan tveggja sólarhringa frá upphafi einkenna. Þessi lyf eru lyfseðilskyld. Þess má geta að þessi lyf virka ekki gegn kórónaveirunni.

Meltingarfærasýkingar. Fjöldi þeirra sem leituðu á heilsugæsluna og á bráðamóttökur með niðurgang síðastliðna viku var svipaður borið saman við meðaltal sömu viku sl. fimm ár. Í síðustu viku voru þrír einstaklingar með staðfesta sýkingu af völdum nóróveiru. Nóróveiran er því áfram í dreifingu í samfélaginu. Í síðustu viku var einnig ein adenóveirusýking og ein sapóveirusýking staðfest á sýkla- og veirufræðideild Landspítala.

Sóttvarnalæknir