Fara beint í efnið

7. febrúar 2019

Flensur og aðrar pestir 5. vika 2019

Frá því um miðjan október 2018 hefur inflúensa A verið staðfest hjá 82 einstaklingum. Flestir greinast með inflúensu A(H1N1)pdm09.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Frá því um miðjan október 2018 hefur inflúensa A verið staðfest hjá 82 einstaklingum. Flestir greinast nú með inflúensu A(H1N1)pdm09 og er það fólk á öllum aldri. Stöku einstaklingar eru að greinast með inflúensu A(H3N2) og eru það helst eldri borgarar. Aðeins tveir hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er þessum vetri. Enn er lítið um innlagnir á Landspítala vegna staðfestrar inflúensu.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Í viku 5 voru samtals 115 einstaklingar sem leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur með inflúensulík einkenni, sem er aukning miðað við undanfarnar vikur.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensa hefur verið að aukast á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef  Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Gögn fyrir 5. viku ársins 2019 hafa ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan breiðist nú út í samfélaginu, en er nokkuð seinna á ferðinni en fyrri ár. Aukning var á fjölda þeirra sem leituðu til heilsugæslunnar vegna inflúensulíkra einkenna, en ekki var mikið um innlagnir á Landspítala vegna inflúensu. Hugsanlegt er að bólusetning gegn inflúensu seinki útbreiðslu hennar og dragi úr fjölda sýkinga, einkum meðal eldri borgara, en einnig getur verið að gömul mótefni gegn H1N1 veirunni veiti vernd hjá þeim aldurshópi.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala hafa samtals 147 einstaklingar greinst með staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) frá miðjum nóvember. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum eru þekktur áhættuhópur.

Meltingarfærasýkingar. Fjöldi tilkynninga frá heilsugæslunni og bráðamóttökum um niðurgang í 5. viku var eins og gera má ráð fyrir á þessum árstíma. Mest hefur greinst af nóró- og adenóveirum í iðrasýkingum frá því í september. Lítið hefur verið um rótaveiru á þessu tímabili.

Sóttvarnalæknir