Fara beint í efnið

30. janúar 2020

Flensur og aðrar pestir - 4. vika 2020

Á síðustu tveimur vikum var inflúensan staðfest hjá 44 einstaklingum, sem er aukning borið saman við vikurnar á undan.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala og fjöldi sýna. Á síðustu tveimur vikum var inflúensan staðfest hjá 44 einstaklingum, sem er aukning borið saman við vikurnar á undan, þar af voru 28 greindir í síðustu. Þar af voru 18 með inflúensu A(H1) pdm09, 18 með inflúensu A(H3) og fimm með inflúensu B/Victoria lineage. Frá því um mánaðarmótin september/október hefur 141 einstaklingur verið með staðfesta inflúensu. Flestir hafa greinst á höfuðborgarsvæðinu en inflúensan hefur líka verið staðfest víða annars staðar.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Fjöldi þeirra sem leituðu til læknis með einkenni inflúensu í 4. viku var nánast óbreyttur miðað við 2. viku þessa árs en í síðustu viku (4. viku) fjölgaði inflúensulíkum einkennum töluvert skv. upplýsingum frá heilsugæslunni og bráðamóttökum.

Innlagnir á sjúkrahús. Alls níu einstaklingar lágu inni á Landspítala með staðfesta inflúensu á síðastliðnum tveimur vikum, þar af voru fimm 67 ára og eldri. Alls fjórir voru með inflúensu A(H3) og fjórir með inflúensu A(H1)pdm09 ekki var búið að greina undirtegund hjá einum.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan hefur verið að aukast og náð mikilli útbreiðslu í löndum Evrópusambandsins. Bæði inflúensa A(H3 og H1pdm09) og inflúensa B greinast, sjá nánar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan færist nú í aukana, töluverð aukning var í fjölda þeirra sem voru með staðfesta inflúensu í síðustu viku borið saman við vikuna á undan og fjöldi með inflúenuslík einkenni eykst. Inflúensan er samkvæmt þessu að breiðast út í samfélaginu þessar vikurnar.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í 4. viku þessa árs voru 24 einstaklingar með staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) og 14 voru með Human Metapneumóveiru (hMPV), sem er aukning miðað við vikurnar á undan. Einnig hefur töluvert greinst af öðrum öndunarfæraveirum.

Er erfitt að greina á milli nýrrar kórónaveiru, inflúensu og annarra öndunarfæraveira?Einkenni Kórónaveirusýkinga geta verið svipuð inflúensu í upphafi sjúkdóms. Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega og lýsa sér með hita, hósta, hálssærindum, höfuðverk, vöðvaverkjum og almennri vanlíðan. Kórónaveiran getur snögglega valdið neðri loftvegasýkingu með lungnabólgu sem getur gert öndun erfiða, en leiðir sjaldnar til einkenna frá efri öndunarfærum eins og og kvefi.

Það kann að valda vandamálum við greiningu sjúkdómanna. Þess vegna er mikilvægt að fá góðar upplýsingar um ferðasögu hjá þeim sem leita til heilbrigðisþjónustunnar með hita, hósta, vöðvaverk og almenna vanlíðan.

Eins og alltaf eru þeir sem fá þessi einkenni hvattir til þess að halda sig heima og minnt er á að til eru öflug lyf gegn inflúensu (Tamiflu® hylki og Relenza® innúðalyf) sem geta dregið úr einkennum inflúensu og flýtt bata ef þau eru tekin innan tveggja sólarhringa frá upphafi einkenna. Þessi lyf eru lyfseðilskyld.

Meltingarfærasýkingar. Fjöldi þeirra sem leituðu á heilsugæsluna og á bráðamóttökur með niðurgang sl. tvær vikur var svipaður borið saman við meðaltal sömu vikna sl. fimm ár. Síðastliðnar tvær vikur voru níu einstaklingar með staðfesta sýkingu af völdum nóróveiru. Nóróveiran er því áfram í dreifingu í samfélaginu. Í síðustu viku voru einnig stöku adenó-, astró- og sapóveirusýkingar staðfestar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala

Sóttvarnalæknir