Fara beint í efnið

30. janúar 2019

Flensur og aðrar pestir - 4. vika 2019

Frá því um miðjan október 2018 hefur inflúensa A verið staðfest hjá 73 einstaklingum.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Frá því um miðjan október 2018 hefur inflúensa A verið staðfest hjá 73 einstaklingum. Flestir sem hafa greinst hafa smitast hér á landi. Aðeins tveir einstaklingar hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er þessum vetri en inflúensa B var ríkjandi seinni part síðasta inflúensutímabils. Lítið hefur verið um innlagnir á Landspítala vegna staðfestrar inflúensu.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Í viku 4. viku leituðu samtals 79 einstaklingar með inflúensulík einkenni til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur, sjá mynd 1.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensa er að færast í aukana á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Gögn fyrir 4. viku ársins 2019 hafa ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan er að breiðast út í samfélaginu, en fer hægt af stað.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Samkvæmt upplýsingum frá veirufræðideild Landspítala hafa samtals 138 einstaklingar greinst með staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) frá miðjum nóvember. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem og hjá ungbörnum eru þekktur áhættuhópur.

Meltingarfærasýkingar. Fjöldi tilkynninga frá heilsugæslunni og bráðamóttökum um niðurgang í 4. viku var nokkuð lægri en gera má ráð fyrir á þessum árstíma, sjá mynd 2. Mest hefur greinst af nóró- og adenóveirum af iðrasýkingum frá því í september. Lítið hefur verið um rótaveiru á þessu tímabili.

Sóttvarnalæknir