Fara beint í efnið

24. apríl 2019

Flensur og aðrar pestir - 15. vika 2019

Inflúensa A var staðfest hjá sex einstaklingum sem er töluverð fækkun frá vikunum á undan. Þar af var einn einstaklingur með inflúensu A(H1N1)pdm09 og fimm með inflúensu A(H3N2).

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Inflúensa A var staðfest hjá sex einstaklingum sem er töluverð fækkun frá vikunum á undan. Þar af var einn einstaklingur með inflúensu A(H1N1)pdm09 og fimm með inflúensu A(H3N2). Inflúensa B var staðfest hjá einum ferðamanni frá útlöndum, en lítið hefur verið um inflúensu B í vetur.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Alls 27 einstaklingar leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur með einkenni inflúensu samkvæmt klínísku mati læknis, sem er fækkun miðað við undanfarnar vikur.

Staðan á meginlandi Evrópu. Það dregur úr inflúensunni á meginlandi Evrópu, sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Yfirlit fyrir 16. viku ársins 2019 hefur ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Inflúensan er á undanhaldi þessa dagana. Verulega dró úr fjölda þeirra sem voru með inflúensu að klínísku mati læknis og greiningum á staðfestri inflúensu fækkaði einnig.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Færri greindust með Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV), en hún var staðfest hjá einum einstaklingi í síðustu viku. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum er þekktur áhættuhópur. Tíu einstaklingar voru með human metapneumoveiru (hMP), sennilega er töluvert um smit með þeirri veiru þessa dagana.

Meltingarfærasýkingar. Frá því í febrúar hafa færri leitað vegna niðurgangs á heilsugæslustöðvar og bráðamóttökur borið saman við meðaltal síðustu ára.

Í síðustu viku var nóróveira staðfest hjá einum einstaklingi og einn var með rótaveiru.

Sóttvarnalæknir