Fara beint í efnið

11. apríl 2019

Flensur og aðrar pestir - 14. vika 2019

Inflúensa A var staðfest hjá 14 einstaklingum í síðustu viku, sem er færra en í vikunni á undan. Þar af voru þrír einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 11 með inflúensu A(H3N2).

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Inflúensa A var staðfest hjá 14 einstaklingum í síðustu viku, sem er færra en í vikunni á undan. Þar af voru þrír einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 11 með inflúensu A(H3N2). Alls greindust níu einstaklingar með staðfesta inflúensu á Landspítala, þar af voru sex inniliggjandi. Inflúensa B var staðfest hjá einum einstaklingi, en afar lítið hefur verið um inflúensu B í vetur.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Alls 62 einstaklingar leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur með einkenni inflúensu samkvæmt klínísku mati læknis, aðeins færri en í vikunni á undan.

Staðan á meginlandi Evrópu. Aðeins virtist draga úr inflúensu á meginlandi Evrópu. Inflúensan var útbreidd í þriðjungi landa á svæðinu, sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Yfirlit fyrir 14. viku ársins 2019 hefur ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Aðeins dró úr fjölda þeirra sem voru með inflúensu að klínísku mati læknis. Þeim fækkaði einnig sem greindust með staðfesta inflúensu og færri leituðu á Landspítala með staðfesta inflúensu. Það virðist því draga hægt úr inflúensunni um þessar mundir.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Færri greindust með Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV) í síðustu viku. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum er þekktur áhættuhópur. Þrír einstaklingar voru með human metapneumoveiru (hMP), en þessi veira getur valdið öndunarfæraeinkennum og áhættuhóparnir eru svipaðir og við RSV.

Meltingarfærasýkingar. Frá því febrúar hafa færri leitað á heilsugæslustöðvar og bráðamóttökur vegna niðurgangs borið saman við meðaltal síðustu ára.

Í síðustu viku var adenóveira staðfest hjá einum einstaklingi og tveir voru með rótaveiru.

Sóttvarnalæknir