Fara beint í efnið

4. apríl 2019

Flensur og aðrar pestir - 13. vika 2019

Inflúensa A var staðfest hjá 21 einstaklingi. Þar af voru átta einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 13 með inflúensu A(H3N2).

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Inflúensa A var staðfest hjá 21 einstaklingi, sem eru aðeins færri en í vikunni á undan. Þar af voru átta einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 13 með inflúensu A(H3N2). Alls greindust 15 einstaklingar með staðfesta inflúensu á Landspítala, sem eru aðeins færri en í undanfarandi viku, þar af voru níu inniliggjandi. Aðeins tveir hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er þessum vetri.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Alls 70 einstaklingar leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur með einkenni inflúensu samkvæmt klínísku mati læknis, sem er svipað og í vikunni á undan.

Staðan á meginlandi Evrópu. Aðeins virtist draga úr inflúensu á meginlandi Evrópu. Inflúensan var útbreidd í þriðjungi landa á svæðinu en hægt er að fá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Yfirlit fyrir 13. viku ársins 2019 hefur ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Svipaður fjöldi var með inflúensu að klínísku mati læknis í síðustu viku, borið saman við vikuna þar á undan. Samtímis dró aðeins úr fjölda þeirra sem greindust með staðfesta inflúensu. Aðeins færri leituðu á Landspítala með staðfesta inflúensu. Sennilega mun draga úr inflúensunni á næstu vikum.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Respiratory Syncytial veirusýking (RSV), var staðfest hjá fjórum einstaklingum í síðustu viku. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum er þekktur áhættuhópur. Tveir einstaklingar voru með human metapneumoveiru (hMP), en þessi veira getur valdið öndunarfæraeinkennum og áhættuhóparnir eru svipaðir og við RSV.

Meltingarfærasýkingar. Í febrúar og mars hafa færri einstaklingar leitað vegna niðurgangs á heilsugæslustöðvar og bráðamóttökur borið saman við meðaltal síðustu ára.

Í síðustu viku greindist nóró- og sapóveira hjá fimm einstaklingum, tveir voru með staðfesta rótaveiru og adenóveira staðfest hjá tveimur.

Sóttvarnalæknir