Fara beint í efnið

22. mars 2019

Flensur og aðrar pestir - 11. vika 2019

Inflúensa A var staðfest hjá 30 einstaklingum, sem er fækkun miðað við vikuna á undan.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Inflúensa A var staðfest hjá 30 einstaklingum, sem er fækkun miðað við vikuna á undan. Þar af voru 15 einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09 og 15 með inflúensu A(H3N2). Alls greindust 19 einstaklingar með staðfesta inflúensu á Landspítala, sem er fækkun borið saman við undanfarandi viku, þar af voru sex inniliggjandi. Aðeins tveir hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er þessum vetri.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Alls 82 einstaklingar leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur með einkenni inflúensu samkvæmt klínísku mati læknis, sem er fækkun miðað við vikuna á undan.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensa er nú útbreidd á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Yfirlit fyrir 11. viku ársins 2019 hefur ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Þeim sem voru með inflúensu að klínísku mati læknis, fækkaði í síðustu viku, samtímis dró bæði úr fjölda þeirra sem greindust með staðfesta inflúensu og fjölda þeirra sem voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu. Inflúensan virðist því vera á undanhaldi þennan veturinn.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Enn er töluvert um staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV), en í síðustu viku var veiran staðfest hjá átta einstaklingum. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftar með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum er þekktur áhættuhópur.

Meltingarfærasýkingar. Í febrúar og það sem af er mars hefur fjöldi tilkynninga frá heilsugæslunni og bráðamóttökum um niðurgang verið lægri en á sambærilegum árstíma síðustu ára.

Í síðustu viku (10. viku) var róta-, sapó- og adenóveira staðfest hjá alls þremur einstaklingum.

Sóttvarnalæknir