Fara beint í efnið

21. mars 2018

Flensur og aðrar pestir - 11. vika (12.–18. mars) 2018

í síðustu viku (11. viku) var inflúensan staðfest hjá 58 einstaklingum sem er töluverð aukning frá vikunni áður.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Í síðustu viku (11. viku) var inflúensan staðfest hjá 58 einstaklingum sem er töluverð aukning frá vikunni áður. Inflúensu B veiran veldur enn flestum sýkingum, en hún var staðfest hjá 44 einstaklingum. Alls greindust 14 einstaklingar með inflúensu A(H3). Þeir sem greindust með inflúensu í vikunni voru flestir eldri en 60 ára.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Í 11. viku fjölgaði lítilsháttar tilfellum sem greindust með inflúensulík einkenni í heilsugæslunni og bráðamóttökum borið saman við vikuna á undan, sjá mynd 1.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensan var enn áberandi á meginlandi Evrópu í 10. viku (5.–11. mars), sjá inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Inflúensa B er algengasta greiningin en bæði inflúensa A(H3) og inflúensa A(H1)pdm09 hafa greinst á meginlandinu og hlutfall þessara veirustofna er breytilegt milli landa.

Innlagnir vegna inflúensu á Landspítala. Samkvæmt upplýsingum frá sýkingavarnadeild Landspítala fjölgar á ný þeim sem þurfa að leggjast inn með inflúensu. Mynd 2 sýnir aldursdreifingu þeirra sem lagðir voru inn á Landspítala með inflúensu frá því í 37. viku 2017. Flestir þeirra voru einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma eða aldraðir.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Í 11. viku var Respiratory Syncytial veiran (RSV) staðfest hjá 13 einstaklingum sem er heldur fleiri borið saman við 10. viku. Í síðustu viku var human metapneumóveira (hMPV) staðfest hjá 5 einstaklingum. Báðar veirurnar greindust meðal fólks á öllum aldri, sem sýnir að bæði RSV og hMPV leggjast á alla aldurshópa þó þær séu þekktar fyrir að valda alvarlegustum einkennum hjá ungum börnum.

Samantekt og mat á öndunarfæraveirum síðastliðnar vikur. Í 11. viku var smávægileg aukning á inflúensulíkum einkennum í samfélaginu. Engu að síður hefur dregið verulega úr fjölda þeirra sem greinast með inflúensulík einkenni. Þess sér þó enn ekki stað í fjölda innlagna á Landspítala vegna inflúensunnar eða fjölda greindra sýna á veirufræðideild spítalans.

Meltingarfærasýkingar. Enn er mikið um tilkynningar um niðurgang, sjá mynd 3. Töluvert er um niðurgang hjá börnum á aldrinum 1–4 ára. Sjö einstaklingar greindust með staðfesta rótaveiru.

Sóttvarnalæknir