Fara beint í efnið

13. mars 2019

Flensur og aðrar pestir 10. vika 2019

Inflúensa A var staðfest hjá 43 einstaklingum, sem er aukning miðað við undanfarandi vikur.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala. Inflúensa A var staðfest hjá 43 einstaklingum, sem er aukning miðað við undanfarandi vikur. Þar af greindust 19 einstaklingar með inflúensu A(H1N1)pdm09, 22 voru með inflúensu A(H3N2), en tveir voru með inflúensu A stofn sem ekki var hægt að undirgreina. Alls greindist 31 einstaklingur með staðfesta inflúensu á Landspítala, sem er aukning borið saman við undanfarandi viku, þar af voru 10 inniliggjandi. Þessi aukning skýrist að miklu leyti af sýkingahrinu á einni legudeild Landspítala, því á síðastliðnum tveimur vikum hafa alls 14 sjúklingar og starfsmenn greinst með staðfesta inflúensu A(H3), en hrinan er nú gengin yfir.

Mikil aukning var á fjölda öndunarfærasýna, sem barst í greiningu á veirufræðideild vegna mislinga í samfélaginu en í sumum tilfellum reyndust veikindin vera vegna inflúensu, þessi aukning á fjölda sýna leiddi því til fleiri staðfestra inflúensugreininga. Aðeins tveir hafa greinst með inflúensu af B-stofni það sem af er þessum vetri.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum. Alls 128 einstaklingar leituðu til heilsugæslunnar og á bráðamóttökur með einkenni inflúensu samkvæmt klínísku mati læknis, sem er fækkun miðað við vikuna á undan.

Staðan á meginlandi Evrópu. Inflúensa er nú útbreidd á meginlandi Evrópu en hægt er að sjá nánari upplýsingar á sameiginlegum inflúensuvef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) og Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Yfirlit fyrir 10. viku ársins 2019 hefur ekki verið birt þegar þetta er ritað.

Samantekt og mat á inflúensunni síðastliðnar vikur. Þeim fækkar sem eru með inflúensu að klínísku mati læknis. En mikil aukning var á staðfestri inflúensu og fleiri greindust með staðfesta inflúensu á Landspítala vegna sýkingahrinu á einni legudeild á spítalanum. Aukinn fjöldi öndunarfærasýna, sem tekin voru vegna hugsanlegra mislinga, en reyndist vera inflúensa, leiddi til þess að fleiri greindust með staðfesta inflúensu. Þessi aukning á staðfestum greiningum endurspeglar því ekki endilega inflúensuna í samfélaginu ef bera á saman við fyrri vikur. Inflúensan gæti þrátt fyrir allt verið á undanhaldi þennan vetur, sbr. fækkun á klínískum greiningum á heilsugæslustöðvum og bráðamóttökum.

RSV og aðrar öndunarfæraveirur. Enn er töluvert um staðfesta Respiratory Syncytial veirusýkingu (RSV), en í síðustu viku var veiran staðfest hjá átta einstaklingum. Börn á fyrsta og öðru aldursári greinast hlutfallslega oftast með RSV en veiran hefur einnig verið staðfest hjá öðrum aldurshópum, einkum meðal aldraðra, sem ásamt ungbörnum er þekktur áhættuhópur.

Meltingarfærasýkingar. Í febrúar og það sem af er mars hefur fjöldi tilkynninga frá heilsugæslunni og bráðamóttökum um niðurgang verið lægri en á sambærilegum árstíma síðustu ára.

Í síðustu viku (10. viku) var nóró-, sapó- og adenóveira staðfest hjá alls fjórum einstaklingum. Undanfarandi vikur hafa stöku einstaklingar greinst með fyrrgreindar veirur. Síðastliðnar sex vikur hefur enginn greinst með staðfesta rótaveiru.

Sóttvarnalæknir