Fara beint í efnið

19. október 2020

Fjarvinna og staðvinna - Ógnir og tækifæri

Embætti landlæknis, VIRK, og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði á netinu fimmtudaginn 29. október kl. 8.30-10.00 undir yfirskriftinni „Fjarvinna og staðvinna - Ógnir og tækifæri“

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis, VIRK, og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði á netinu fimmtudaginn 29. október undir yfirskriftinni Fjarvinna og staðvinna - Ógnir og tækifæri

Hér er hlekkurinn á streymi fundarins sem verður sendur út í Teams Live Event.

Morgunfundinum verður streymt fimmtudaginn 29. október kl. 8.30-10.00 á vefsíðum VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins - sjá viðburðinn á Facebook.

Dagskrá

Fjarvinnan og framtíðin - Lærdómur og næstu skrefHinrik Sigurður Jóhannesson mannauðsstjóri Advania

Kóvít-19 hefur ýtt stjórnendum út í breytingar - Afleiðingar og lærdómurÁrelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við HÍ.

Ingibjörg Loftsdóttir sviðsstjóri hjá VIRK stjórnar fundinum.

Morgunfundurinn er sá sjötti í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi embættis landlæknis, VIRK og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.