Fara beint í efnið

8. mars 2019

Fimmta mislingatilfellið staðfest

Í dag staðfesti Veirufræðideild Landspítala nýtt mislingatilfelli og er það fimmta tilfellið sem staðfest hefur verið frá því 18. febrúar sl. Umræddur einstaklingur komst í snertingu við þann aðila sem kom með flugi til Egilsstaða þann 15. febrúar og greindist síðar með mislinga.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í dag staðfesti Veirufræðideild Landspítala nýtt mislingatilfelli og er það fimmta tilfellið sem staðfest hefur verið frá því 18. febrúar sl. Umræddur einstaklingur komst í snertingu við þann aðila sem kom með flugi til Egilsstaða þann 15. febrúar og greindist síðar með mislinga.

Sóttvarnalæknir hefur gripið til varúðarráðstafana og bólusetning gegn mislingum verður í boði um helgina fyrir forgangshópa á höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi.

Upplýsingar um staðsetningar er að finna á vef Heilbrigðisstofnunar Austurlands og á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins.

Hjúkrunarfræðingar svara fyrirspurnum í síma 1700 allan sólarhringinn alla daga vikunnar.

Hér má sjá spurningar og svör varðandi mislinga.

Mislingar - staða mála og fræðsla

Sóttvarnalæknir
Föstudagur 8. mars 2019 kl. 16:45