4. júlí 2018
4. júlí 2018
Farsóttafréttir eru komnar út - júlí 2018
Í fréttabréfi sóttvarnalæknis er sagt frá mislingum um borð í flugvél Icelandair og afdrifum þess máls.
Í fréttabréfinu er m.a. sagt frá mislingum um borð í flugvél Icelandair og afdrifum þess máls. Lagt er mat á hættu á mislingafaraldri hér á landi.
Einnig er sagt frá hópsýkingu sem braust út meðal áhafnarmeðlima íslensks farskips á hafi úti.
Fjallað er um nýja reglugerð um meðferð og flutning á líkum hér á landi.
Vakin er athygli á kynsjúkdómum, einkum lekanda sem fyrr er talsvert vandamál og fjallað er um fyrirhugaðar aðgerðir til að hindra útbreiðslu þeirra.
Sýklalyfjaónæmi er vaxandi vandamál hér á landi sem og annars staðar í heiminum en unnið er að því vinna gegn því.
Lesa nánar: Farsóttafréttir. 11. árgangur. 3. tölublað. Júlí 2018.
Sótvarnalæknir