Fara beint í efnið

2. maí 2019

Er ávaxtakarfa og líkamsræktarstyrktur nóg?

Morgunfundur Embættis landlæknis, VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, og Vinnueftirlits Ríkisins um heilsueflandi vinnustaði verður haldinn í Háteigi á Grand Hótel þann 9. maí. kl. 8.15-10.00.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Morgunfundur Embættis landlæknis, VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, og Vinnueftirlits ríkisins um heilsueflandi vinnustaði verður haldinn í Háteigi á Grand Hótel þann 9. maí. kl. 8.15-10.00. 

Húsið opnar kl. 8.00 með léttri morgunhressingu.

Fundurinn er öllum opinn, aðgangur er ókeypis en skrá þarf þátttöku á virk.is.

Aðalfyrirlesari fundarins, Karolien Van Den Brekel heimilislæknir og doktor í sálfræði fjallar um jákvæða heilsu og vinnustaði. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir frá Embætti landlæknis ræðir hvernig gera megi betur í heilsueflingu og Jóhann F. Friðriksson frá Vinnueftirlitinu útskýrir mikilvægi fjárfestingar í heilsu starfsmanna.Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri hjá VIRK, stýrir fundinum.

Dagskrá

08.15 Fundur settur

  • Heilsuefling - Tækifæri til að gera betur - Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, lýðheilsufræðingur, Embætti landlæknis

  • Hvers vegna að fjárfesta í heilsu starfsmanna? - Jóhann F. Friðriksson, lýðheilsufræðingur, Vinnueftirliti ríkisins

  • Jákvæð heilsa á vinnustað, Karolien Van Den Brekel MD, Phd

Morgunfundurinn er sá fyrsti í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.