Fara beint í efnið

23. júlí 2019

Engin tilfelli af E. coli greindust - smitleiðir rannsakaðar áfram

Í dag, 23. júlí, voru rannsökuð saursýni frá fjórum einstaklingum m.t.t. E. coli sýkinga en enginn greindist með sýkinguna

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í dag 23. júlí voru rannsökuð saursýni frá fjórum einstaklingum m.t.t. E. coli sýkinga en enginn greindist með sýkinguna.

Engin breyting hefur orðið líðan barnanna sem fylgst er með á Barnaspítala Hringsins.

Frekari rannsóknir standa enn yfir á hugsanlegum smitleiðum í Efstadal og er niðurstaðna að vænta á næstu dögum.

Sóttvarnalæknir