Fara beint í efnið

21. mars 2019

Engin ný mislingatilfelli hafa greinst

Í dag, fimmtudaginn 21. mars, hafa engin ný mislingatilfelli verið greind og er heildarfjöldi staðfestra tilfella 6 og eitt vafatilfelli. Alls hafa verið tekin sýni hjá um 90 einstaklingum á undanförnum vikum.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í dag, fimmtudaginn 21. mars, hafa engin ný mislingatilfelli verið greind og er heildarfjöldi staðfestra tilfella 6 og eitt vafatilfelli. Alls hafa verið tekin sýni hjá um 90 einstaklingum á undanförnum vikum.

Öllu bóluefni sem kom til landsins hefur verið dreift til heilsugæslustöðva um allt land og má finna upplýsingar um framkvæmd bólusetninga á vef einstakra heilsugæslustöðva. Upplýsingar um forgangshópa má finna hér.

Sóttvarnalæknir