Fara beint í efnið

30. nóvember 2020

Endurskoðun opinberra ráðlegginga um hreyfingu að hefjast

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur gefið út nýjar ráðleggingar um hreyfingu og kyrrsetu. Ráðleggingarnar eru uppfærð útgáfa fyrri ráðlegginga WHO um hreyfingu frá árinu 2010.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur gefið út nýjar ráðleggingar um hreyfingu og kyrrsetu. Ráðleggingarnar eru uppfærð útgáfa fyrri ráðlegginga WHO um hreyfingu frá árinu 2010. Í fréttatilkynningu WHO í tilefni af útgáfunni er m.a. vitnað í framkvæmdastjóra WHO, Dr Tedros Adhanom Ghebreyesus: ,,Regluleg hreyfing er nauðsynleg fyrir heilsu og vellíðan – hún bætir árum við lífið og lífi við árin. Öll hreyfing telur, sérstaklega núna þegar við tökumst á við takmarkanir vegna COVID-19 faraldursins. Við þurfum öll að hreyfa okkur daglega – með öruggum og skapandi hætti".

Í kjölfar útgáfu ráðlegginga WHO hefur embætti landlæknis sett á fót faghóp um endurskoðun opinberra ráðlegginga um hreyfingu fyrir Ísland. Núgildandi ráðleggingar eru frá árinu 2008 og munu uppfærðar ráðleggingar að óbreyttu koma út árið 2021.

Í nýju staðreyndablaði Evrópuskrifstofu WHO um hreyfingu á Íslandi, sem embætti landlæknis vann í samráði við hagaðila, má finna margvíslegar upplýsingar um hreyfingu á Íslandi. Staðreyndablöð annarra Evrópuþjóða eru einnig aðgengileg á vef WHO.

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar
Netfang: gigja@landlaeknir.is